Gull og silfur Vignir Vatnar Stefánsson og Alexandr Domalchuk-Jónasson báru af í efsta flokki á NM í skólaskák. — Ljósmynd/Helgi Ólafsson

Vignir Vatnar Stefánsson virðist kunna einstaklega vel við sig á Spáni. Fyrir rúmri viku vann hann mótasigur á Tenerife og nú er Vignir í dauðafæri á að ná í sinn annan mótasigur í röð! Vignir og Aleksandr Domalchuk-Jonasson eru jafnir öðrum í efsta sæti á opna Festival Internacional de Ajedrez Ciudad de Gáldar 2024 á Kanaríeyjum fyrir lokaumferðina. Vignir og Aleksandr unnu báðir sínar skákir í dag, Alexander Oliver Mai gerði jafntefli en Dagur Ragnarsson laut í dúk gegn stórmeistara.

Vignir Vatnar Stefánsson, Dagur Ragnarsson og Aleksandr Domalchuk-Jonasson voru allir jafnir í efsta sæti með 5,5 vinning af 7 og Alexander Oliver Mai hafði 4 vinninga. Allir Íslendingarnir voru í beinni nema Alexander Oliver.

Í áttundu umferðinni hafði Vignir hvítt og mætti alþjóðlega meistaranum Adrian Suarez (2383). Skemmst er frá því að segja að Vignir vann auðveldan sigur.

11.Ba3!? er leikur sem Vignir gefur upp í Katalan-námskeiði sínu á VignirVatnar.is eini gallinn við efnið er að það er á íslensku þannig að andstæðingar Vignir geta ekki undirbúið sig með því að horfa á vídeóin! Eftir leikinn þarf svartur nánast að þræða einstigi til að fá ekki tapað tafl. Í stuttu máli fann Spánverjinn ekki bestu leiðirnar og fékk fljótt tapað tafl. Ef þið viljið halda áfram að styðja við Vigni á hans vegferð þá má mæla með VignirVatnar.is áskrift…bónusinn er að þið gætuð farið að vinna of margar skákir auðveldlega!

Dagur varð að lúta í dúk með svart gegn svart gegn GM Josep Martinez (2448). Dagur var lengi með ákveðin praktískt vandamál tengd liðsskipan og var við það að yfirstíga þau vandamál þegar hann lék af sér hreinum kalli…beint í hafið 🙁

Aleksandr hafði hvítt gegn GM Karen Movsziszian (2444). Movsziszian skáksetti biskup sinn eins og venjulega, fékk sína venjulegu „skítastöðu“ (+1 á hvítt) en jafnaði þrátt fyrir það taflið. Armeninn fékk eitthvað betra í kjölfarið en lék af sér skiptamun í 28. leik og Aleksandr greip tækifærið og kom sér í góða stöðu í mótinu!

Alexander Oliver gerði jafntefli við sinn andstæðing í 8. umferðinni.

Vignir og Aleksandr hafa nú 6,5 vinning og eru efstir ásamt þremur öðrum skákmönnum. Í lokaumferðinni hljóp á snærið hjá Vigni sem hefur aftur hvítt og mætir GM Andrey Sumets (2517) með hvítu. Aleksandr fær svart gegn GM Tomas Beerdsen (2509). Aleksandr er efstur á oddastigum fyrir lokaumferðina en Íslendingarnir ættu báðir að standa vel ef þeir vinna í lokaumferðinni! Dagur og Alexander Oliver hafa báðir hvítt í lokaumferðinni og hljóta að vilja klára með sigri.

- Auglýsing -