Íslensku keppendurnir á alþjóðlegu móti á Spáni, Colonia Sant Jordi, áttu ágætis dag. Stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson (2452) gerði jafntefli við stórmeistara eftir að hafa unnið þrjá sigra í röð eins og stormsveipur. Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2384) vann flottan sigur þar sem hann töfraði fram kóngssókn í jafnri stöðu og Dagur Ragnarsson (2346) gerði jafntefli þar sem hann var að pressa peði yfir.
GM-flokkur
Helgi mætti stórmeistara frá Síle, Javier Campos Moreno og skildu þeir jafnir. Staðan í dýnamísku jafnvægi og báðir sáttir með að slíðra sverðin.
Helgi hefur nú 4,5 vinninga af 7 mögulegum og má vel við una!
IM-flokkur
Aleksandr Domalchuk-Jonasson var hálfum vinningi á undan Degi í flokknum með 3,5 vinning og mætti FM Pau Marin Ferregut. Staðan var í algjöru jafnvægi, 0.0 en þá náði Aleksandr skyndilega að koma upp kóngssókn úr nánast engu sem skyldi að lokum svarta kónginn eftir kolrangstæðan á vallarhelmingi hvíts!
Dagur virtist í smá krippu eftir byrjunina en vann sig smátt og smátt inn í skákina og komst að lokum í hróksendatafl peði yfir en það dugði ekki til.
Eftir sex umferðir hefur Aleksandr 4.5 vinning og Dagur er með 3,5 vinning
Taflmennska heldur áfram á morgun í báðum flokkum, ein skák tefld á dag.















