Laugardagurinn 16. nóvember reyndist svo sannarlega svartur dagur í Svartfjallalandi. Íslenska fótboltalandsliðið náði að koma í veg fyrir að landinn yrði algjörlega „eggjaður“ út í landinu fagra við Adríahafið. Ungu strákarnir skoruðu mörkin fyrir íslenska fótboltalandsliðið og ungu strákarnir (og stelpurnar!) á EM reyndust íslensku keppendunum erfiðir en elsti andstæðingur Íslendinga í dag var 25 ára, hinir voru 18, 16, 16 og 14 ára!

Vignir Vatnar Stefánsson stóð best að vígi fyrir umferðina með 4,5 vinning eftir gott gengi. Helgi og Guðmundur höfðu 4 vinninga, Hannes 3,5 og Aleksandr 3 vinnninga.

Vignir hafði svart og mætti ungum Armena, Erik Gasparyan (2371). Sigur í þessari skák hefði gefið ansi góð færi, sérstaklega í ljósi þess að Vignir er líklegur að fá tvo hvíta í síðustu þremur umferðunum.

Skákin þróaðist í raun eins og vel og hægt var framan af. Vignir leysti byrjanavandamál sín nokkuð auðveldlega með svörtu og fékk upp stöðu þar sem Vignir stóð vel og hægt að tefla upp á öll úrslit. 20…0-0-0 hefði líklegast gefið svörtum gott tafl peði yfir en þess í stað fórum við í smá leðjuslag þar sem allt gat gerst. Líklegast fór moldin að renna undir fótum Vignis eftir 29…Kf6? og Armeninn má eiga það að hann tefldi gríðarlega vel í kjölfarið og fann mjög flotta leiki og hafði á endanum sigur.

Grátlegt tap upp á mótið en nú verður Vignir að spýta í lófana og setja saman nokkrar vinningsskákir í röð á endasprettinum!

Helgi Áss fékk grjótharðan þýskan landsliðsmann, Dmitrij Kollars (2641). Þessi 25 ára Þjóðverji var „langelsti“ andstæðingur íslensku strákanna í dag. Helgi hafði hvítt og lokaði miðborðinu og gaf andstæðingnum kost á kóngssókn en fékk í staðinn peð. Helgi virtist vera að ná tökum á stöðunni en Kollars fann gott gegnumbrot og upp kom staða með þrjá létta menn Helga gegn tveimur hrókum Kollars. Kollars hafði hinsvegar gott frumkvæði og náði að beita hótunum og littlum taktískum aðgerðum til að klekkja á Helga.

Guðmundur varð að lúta í dúk með svörtu gegn bráðefnilegum 14 ára Tyrkja, Yigit Karaca (2006). Tyrkinn braust í gegn í þungu miðtafli og tefli sóknarhluta skákarinnar skínandi vel og gaf Guðmundi enga möguleika.

Hannes lenti í vörn í endatafli gegn 18 ára serbneskum FM Matic Lavrencic (2366). Líklegast hefði Hannes átt að halda endataflinu peði undir en öll peðin voru á sama væng. Serbinn sýndi mikla þrjósku og náði að brjótast í gegn í lokin og hirða „öll stigin“.

Aleksandr virðist í smá öldudal nú um miðbik móts og nær vonandi að vinna sig úr honum. Byrjunin misheppnaðist algjörlega og hin 16 ára Shvedova (2206) tók alfarið yfir skákina þegar Aleksandr gaf kost á 11…d3! og hvítur er í vandræðum. Aleksandr náði ekki að vinna sig út úr vandræðunum og tapaði.

Úrslit umferðarinnar

Afleit umferð þar sem Íslendingar töpuðu öllum sínum skákum.

Serbinn sókndjarfi Alexander Indjic er enn efstur á mótinu með 7 vinninga af 8 og hefur nú hálfan vinning í forskot.

Pörun í 9. umferð

Í níundu umferð sem fram fer á morgun hefur Vignir hvítt gegn Ítalanum grjót-trausta Michele Godena sem hefur oft reynst okkur erfiður á 50+ mótunum. Allir íslensku keppendurnir tefla niðurfyrir sig á stigum.

Skákir hefjast 14:00 að íslenskum tíma (14:15 með delay). Teflt er á hverjum degi frá og með föstudeginum (eftir frídaginn).

Flestir af sterkustu virku skákmönnum þjóðarinnar taka þátt að þessu sinni. Íslensku keppendurnir eru:

Vignir Vatnar Stefánsson (2530) nr. 86
Hannes Hlífar Stefánsson (2485) nr. 116
Guðmundur Kjartansson (2470) nr. 122
Helgi Áss Grétarsson (2441) nr. 139
Aleksandr Domalchuk-Jonsson (2399) nr. 183

- Auglýsing -