Eftir afleita umferð á laugardeginum náðu íslensku strákarnir að bíta aðeins frá sér á EM einstaklinga í Petrovac í Svartfjallalandi. Vignir Vatnar náði sér í sigur gegn ítalska stórmeistaranum Michele Godena, Aleksandr Domalchuk-Jonasson hristi af sér slenið og vann sína skák.
Vignir Vatnar Stefánsson stóð sem fyrr best að vígi fyrir umferðina með 4,5 vinning eftir gott gengi. Helgi og Guðmundur höfðu 4 vinninga, Hannes 3,5 og Aleksandr 3 vinnninga.
Vignir hafði hvítt og mætti eins og áður sagði Ítalanum Michele Godena. Segja má að hér hafi kynslóðirnar mæst. Vignir var greinilega mun betur klár í ítalska leikinn og Godena bæði eyddi of miklum tíma og leyfði vel heppnaða mannsfórn á g5 reitnum. Vignir hefði mögulega átt beittari leiðir til að klára dæmið en kláraði dæmið engu að síður nokkuð sannfærandi.
Mikilvægur sigur hjá Vigni sem heldur hans möguleikum á lífi.
Guðmundur Kjartansson gerði jafntefli gegn georgískum FIDE-meistara. Guðmundur var í smá bobba í byrjuinni, náði að redda sér og hélt jafntefli í endataflinu þrátt fyrir að vera peði undir á köflum.
Helgi Áss tefldi mikla baráttuskák gegn armenskum FIDE-meistara en varð að lúta í dúk í skák þar sem báðir áttu sína möguleika. Helgi virðist hafa fallið á tíma í steindauðu jafntefli í lokin sem er auðvitað grátlegt.
Hannes varð að sætta sig við jafntefli gegn stigalægri andstæðing með svörtu. Gríski FIDE meistarinn fórnaði drottningu fyrir gangandi þráskák og Hannes varð að gera sér jafnteflið að góðu þrátt fyrir að tefla sikileyjarvörn og vilja tefla skákina til vinnings.
Aleksandr Domalchuk-Jonasson vann sína skák en var ekki í beinni útsendingu.
Úrslit umferðarinnar
Skárri umferð en í gær en þó ekkert til að stæra sig af.
Serbinn sókndjarfi Alexander Indjic er enn í banastuði og vann með svörtu gegn Ivan Cheparinov í 9. umferðinni. Indjic er aftur kominn með vinning í forskot og er orðinn ansi líkegur sigurvegari á þessu móti!
Pörun í 10. umferð
Í tíundu umferð sem fram fer á morgun hefur Vignir svart gegn Valeriy Neverov, traustum stórmeistara frá Úkraínu sem er þó kominn nokkuð til ára sinna. Vignir þarf að ná í sigur til að geta átt einhverja möguleika á Heimsbikarmóts-sæti. Auk Vignis tefla allir niðurfyrir sig. Tveir mótherjar frá Ísrael og Helgi Áss fær möguleika á að hefna fyrir félaga sinn gegn Önnu Kuicka frá Póllandi.
Skákir hefjast 14:00 að íslenskum tíma (14:15 með delay). Teflt er á hverjum degi frá og með föstudeginum (eftir frídaginn).
Flestir af sterkustu virku skákmönnum þjóðarinnar taka þátt að þessu sinni. Íslensku keppendurnir eru:
Vignir Vatnar Stefánsson (2530) nr. 86
Hannes Hlífar Stefánsson (2485) nr. 116
Guðmundur Kjartansson (2470) nr. 122
Helgi Áss Grétarsson (2441) nr. 139
Aleksandr Domalchuk-Jonsson (2399) nr. 183
















