Fullt hús Markús Orri við taflið. — Ljósmynd/Áskell Örn Kárason

Síðastliðna helgi fór fram Atskákmót Akureyrar. Hinn ungi Markús Orri Óskarsson varð sigurvegari og bætti þar í bikarasafnið en fyrr á árinu varð hann yngsti Skákmeistari Akureyrar í sögunni.

Þátttaka var nokkuð góð en alls mættu 15 keppendur til leiks. Tefldar voru sjö umferðir eftir svissnesku kerfi yfir tvo keppnisdaga.

Markús Orri og Áskell Örn voru efstir eftir fyrri daginn með 3,5 vinninga eftir að hafa gert jafntefli í innbyrðis skák. Markús tók svo forystuna í fimmtu umferð þegar Áskell lék sig í mát gegn Smára. Í sjöttu umferð voru heilladísirnar með Markúsi þegar Tobias gat mátað hann í tveimur leikjum, en yfirsást það og tapaði.

Lokastöðuna má finna á chess-results, en verðlaunahafar voru þessir:

1. Markús Orri Óskarsson   6,5   Akureyrarmeistari
2. Smári Ólafsson          6
3. Áskell Örn Kárason      5,5
4. Tobias Matharel         4     sigurvegari í unglingaflokki
11. Viacheslav Kramarenko  3     sigurvegari í barnaflokki

- Auglýsing -