Sterkasti skákmaður heims, Magnús Carlsen fór skelfilega af stað á fyrsta degi HM í atskák en Heimsmeistaramótin í at- og hraðskák fara fram þessa dagana í New York. Tefldar voru fimm fyrstu umferðir af þrettán í gær og fékk Carlsen aðeins 2,5 vinning í skákunum og hefði getað farið verr. Þetta er versta byrjun Carlsen frá því hann hóf að taka þátt í mótinu. Íslandsmeistarinn Helgi Áss Grétarsson átti einnig erfiðan dag og náði aðeins hálfum vinning í hús. Helgi fékk erfitt prógram í byrjun, þrjá sterka Indverja og laut í dúk gegn þeim öllum. Báðir munu vafalítið rétta úr kútnum þegar líður á.
Ólíklegt verður að teljast að Carlsen náði að verja titil sinn en hann er nú tveimur vinningum á eftir efstu mönnum. Margir sterkir skákmenn voru í vandræðum og efstu menn ekki þeir þekktustu. Lenier Dominguez er þekkastur þeirra sem hafa 4,5 vinning í efsta sæti en þeir Murzin og Sargsyan minna þekktir. Streymarinn þekkti Daniel Naroditsky er nokkuð óvænt jafn þeim í efsta sæti. Vladimir Kramnik hefur undanfarið bakar sér miklar óvinsældir með furðulegum ásökunum um svindl Naroditsky, ásakanir sem virðast vægast sagt úr lausu lofti gripnar.
Magnus var heppinn með nokkur af jafnteflum sínum þar sem hann þurfti að bjarga töpuðum stöðum. Í lokaumferð dagsins tapaði hann svo gegn Denis Lazavik.
Af stóru nöfnunum eru margir með 4 vinninga, þar má helst nefna Giri, Erigaisi, Abdusattorov, Duda og Hikaru Nakamura.
Nakamura lenti í ótrúlegu atviki þar sem andstæðingur hans krafðist jafnteflis þegar hann var einum leik frá því að verða mát. Atvikið átti sér stað akkúrat í 50. leik og krafan því réttmæt og jafntefli niðurstaðan!
Í dag eru tefldar fjórar atskákir og hefst fyrsta umferðin kl. 19:05. Mótinu lýkur svo á laugardag og hraðskákin tekur við á sunnudag og mánudag.
Helgi Áss er nr. 150 í stigaröð 182 keppenda svo hér mikil áskorun á ferðinni fyrir okkar mann. HM í hraðskák hefst svo 30. desember. Þar teflir okkar maður einnig. Áfram Helgi!
HM kvenna í at- og hraðskák fer fram á sama tíma en fjórar umferðir af ellefu voru tefldar í gær. Bandaríska ungstirnið Alice Lee er óvænt efst með fullt hús, 4 vinninga af 4 mögulegum. Á hæla hennar koma þekktari nöfn með 3,5 vinning, Ju Wenjun, Tan Zhongyi og Harika Dronavali ásamt fleirum.
Boðið er upp á ýmsar beinar útsendingar, hægt er að fylgjast með mótinu á NRK sjónvarpsstöðinni og eins er sýnt beint á rásum Chess.com og Take Take Take svo eitthvað sé nefnt.
















