Aleksandr Domalchuk-Jonasson hóf í dag leik á opnu móti á Ítalíu 13th Festival Città di Palmanova. Um er að ræða opið mót með 64 keppendum og er okkar maður númer 8 í stigaröðinni.

Í fyrstu umferð mætti Aleksandr Þjóðverjanum Tugrul Turel (2164) sem virðist vera með stiga „af gamla skólanum“ sem á eftir að tæta í sundur af breyttu landslagi skákheimsins. Allavega ef marka má þessa skák! Þjóðverjinn með tyrkneska nafnið lék skákinni mjög kjánalega niður eftir vægast sagt misheppnaða byrjun og gafst upp eftir 13. leik Aleksandrs.

Auðveldur dagur á skrifstofunni og fín upphitun.

Í umferð morgundagsins mætir Aleksandr Pólverjanum Wojciech Reza (2227) sem er FIDE-meistari. Aleksandr hefur svart.

- Auglýsing -