Norðmaðurinn Magnus Carlsen náði að verja Heimsmeistaratitil sinn í hraðskák eftir söguleg úrslit sem fram fóru og lauk rétt er áramótin gengu í garð á Íslandi. Magnus tefldi til úrslita við Ian Nepomniachtchi (Nepo) og þegar illa gekk að ná í hrein úrslit stakk Magnus upp á því að þeir myndu einfaldlega skipta titilnum sín á milli, fordæmalaus tilraun. Eftir samtöl, símtöl og bið var þessi beiðni samþykkt…líklegast FIDE ekki viljað rugga bátnum neitt frekar þegar kemur að Carlsen eftir að friðarsamningar á milli Magnúsar og FIDE náðust í kjölfar „Stóra-Gallabuxnamálsins“.
Fyrri keppnisdagur Heimsmeistaramótsins fór í að finna 8 efstu keppendur í 13 umferða móti. Þeir mættust í 8-manna úrslitum sem voru nokkuð skemmtileg.
Nepomniachtchi vann gegn Murzin 2,5-0,5 og Pólverjinn Duda sýndi óvænt nokkra yfirburði og lagði Caruana 2,5-0,5 en Caruana var lengst af móti efstur á undanmótinu í gær. Wesley So náði að leggja Firouzja í ögn meira spennandi einvígi 3-1 en mest spennandi einvígið var klárlega einvígið sem allir höfðu beðið eftir, Carlsen gegn Niemann.
Einvígi Carlsen og Niemann var beðið með eftirvæntingu enda komst það nánast í heimsfréttirnar þegar Magnus hætti í Sinquefield Cup árið 2022 og Niemann var sakaður um svindl. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá. Óstaðfestar heimildir benda til að Chess.com/Magnus/Nakamura hafði orðið að semja utan dómstóla við Niemann sem hefur væntanlega fengið væna summu og Niemann var hleypt aftur inn á Chess.com og Carlsen varð að lofa að tefla við hann myndu þeir lenda saman á mótum. Flestir sammála um að Carlsen hafi leikið af sér á sínum tíma og ekki haft neitt í höndunum. Það mál heldur þó áfram að flækjast eftir að Dubov neitaði að mæta til leiks gegn Niemann í undanrásunum, sagðist hafa sofið yfir sig en öllum ljóst að svo var ekki of Dubov sjálfur eiginlega staðfesti það með kaldhæðni í viðtölum án þess að viðurkenna eitt né neitt.
Niemann hefur bara bætt sig síðan árið 2022 og hann gerði Carlsen erfitt fyrir, í raun var Carlsen í mestu vandræðum sem hann komst í allt mótið gegn Niemann. Niemann komst nefnilega yfir 1,5-0,5 í einvíginu og Magnus þurfti að hafa mikið fyrir því að jafna metin og vinna svo lokaskákina…ekki hefði þurft mikið til að Niemann hefði lagt Carlsen að velli!
Carlsen var enda létt þegar sigurinn var í höfn eins og sjá mér hér ->
https://x.com/JohnyBravo183/status/1874193001037389981
Í undanúrslitum var Carlsen öruggari og lagði Duda nokkuð örugglega 3-0. Nepo þurfti bráðabana gegn So eftir 2-2 jafntefli í einvíginu en Nepo vann bráðabanaskákina og leikar enduðu 3-2
Í úrslitum leit út fyrir að Carlsen væri að sigla lygnan sjó, komst í 2-0 og allt stefndi í öruggan sigur. Nepo tók sig þá til og jafnaði metin í 2-2. Til að gera það þurfti Nepo stórglæsilega fléttutilburði á ögurstundu með svörtu mönnunum í síðustu skákinni sem hægt er að sjá í myndbandinu hér að neðan.
Nú þurfti að grípa til bráðabana. Tefld er ein skák með skiptum litum þar til annar vinnur skák. í hönd fóru þrjár jafnteflisskákir þar sem hvorugur var nærri því að vinna. Að lokinni þriðju jafnteflisskákinni stakk Carlsen upp á því að þeir myndu skipta titlinum.
https://x.com/FIDE_chess/status/1874243415036055821
Fordæmalaust eins og áður sagði í skákinni en hefur þó gerst t.d. á Ólympíuleikum í hástökki:
Sitt sýnist þó hverjum og hefur verið athyglisvert að skoða skoðanir manna á samskiptamiðlum.
Niemann heldur áfram að pota sér í sviðsljósið en punktur hans er góður. Carlsen er e.t.v. að grínast en þetta er í raun ekkert annað en „match-fixing“ ef þeir myndu framkvæma gjörninginn sem Magnus talar um.
https://x.com/HansMokeNiemann/status/1874433609177997364
Þýski stórmeistarinn Elli Paehtz finnst Carlsen vera yfir lögin hafin og fá sérmeðferð:
https://x.com/ElliPaehtz/status/1874249342204469400
Max Warmerdam með fínan punkt:
https://x.com/max_warmerdam/status/1874264459503362552
Ljóst er að flestir eru mótfallnir þessari ákvörðun hjá Carlsen og Nepo og verður Ritstjórn að vera sammála. Þetta var hálfgerður afsakið slettuna „anti-climax“ á annars fínu móti.
Annað anti-climax er að tefla öll einvígin á sama tíma. Lokaeinvígi Ju Wenjun og Tan Zhonqyi í kvennaflokki féll í skuggann á einvígi Carlsen gegn Nepo, skiljanlega. Ju Wenjun hafði betur í bráðabanaskák og er heimsmeistari kvenna í hraðskák.

















