(Mynd: Thor Kvakkestad)

Alþjóðlegi meistarinn Aleksandr Domalchuk-Jonasson er að standa sig best íslensku keppendanna og hefur 3,5 vinning í efsta sæti A-flokks á Norðurlandamótinu í Borgarnesi. Benedikt Briem fylgir honum fast á eftir í A-flokknum en Markús Orri er líka að gera gott mót með 2,5 vinning í B-flokki.

Skoðum gang mála í hverjum flokki fyrir sig!

A-flokkur U20

Eins og áður sagði er Aleksandr Domalchuk-Jonasson efstur með 3,5 vinning og má að mörgu leyti segja að hann hafi boðið upp á tafllok mótsins hingað til. Sasha bauð andstæðingi sínum upp á að vekja upp drottningu….

…og svaraði með 47.Re5! og ótrúlegt en satt þá á svartur ENGA vörn gegn Rf7+ án þess að tapa liði! Skák sem vert er að renna yfir!

Aleksandr er efstur með 3,5 vinninga en þeir Benedikt Briem og Luijten Apol koma í humátt á eftir með 3 vinninga og mætast innbyrðis í 5. umferðinni í lykilskák! Benedikt Þórisson hefur 2 vinninga.


B-flokkur U17

Í B-grúppunni er Normaðurinn William Alexander Olsen sem byrjaði númer fjögur í rásröðinni efstur með fullt hús! Hann bauð upp á stórkostlegan leik gegn sænskum andstæðingi í 4. umferð

30.Rd6!! er frábær vinningstilraun. Olsen gerði eiginlega allt rétt nema að finna 34.Kg1!! sem minnir um margt á Khismatullin vs Eljanov sem er nánast goðsagnakennd skák. Hinn sænski Raliega hefði getað varist eftir mistök Olsen en fann ekki bestu leikina og varð að lúta í dúk.

Aku Salonen lítur út fyrir að vera sá eini sem gæti skákað William en þeir mætast í 5. umferðinni. Markús hefur 2,5 vinning og hefur svart gegn Raliega í 5. umferðinni. Líklega lykilskák þegar kemur að möguleikum á að enda á verðlaunapalli!

Mikael Bjarki hefur 1,5 vinning en hefði átt að gera betur í 3. umferðinni í unnu hróksendatafli.

C-flokkur U15

C-grúppan en enn ein grúppan með óvæntan oddafisk. Hinn finnski Eli Asikainen er með fullt hús eftir að hafa fundið klassíska taktík í fjórðu umferð.

15…Rxg2! ætti að vera taktík sem góðir skákmenn finna! 16.Kxg2 Bh3+! 17.Kxh3 Dxf3+ rekur kónginn á flótta.

Íslensku strákarnir í C-flokki hafa ekki náð sér á strik en náðu sér báðir í vinning í fjórðu umferð en eru ekki í baráttu um verðlaun. Josef hefur 2 vinning en Sigurður Páll 1,5 vinning.

D-flokkur U13

Í  D-floki er enn einn Finninn með 4 af 4.  Radmir Vorobyov ætti að eiga sigurinn vísann ef hann leggur Norðmanninn Isai Sivaparan að velli í fimmtu umferð.

Örvar Hólm hefur 2 vinninga, Birkir 1,5 vinning en Emilia Embla hefur ekki enn komist á blað.

E-flokkur U11

Zhang Yiming er enn einn Finninn sem fer með himinskautum í E-flokknum. Zhang hefur fullt hús og er líklegur sigurvegari, sérstaklega ef hann leggur Norðmanninn Michael Mortensen í fimmtu umferðinni.

Íslensku strákarnir Haukur Víðis og Pétur Úlfar hafa teflt virkilega vel á löngum köflum í mótinu en ekki uppskorið samkvæmt því. Haukur hefur 2 vinninga og Pétur 1 vinning eftir góða skák í dag.

Taflmennskan heldur áfram á sunnudeginum með lokaumferðunum tveimur þar sem hart verður barist í Borgarnesinu!

- Auglýsing -