Gull og silfur Vignir Vatnar Stefánsson og Alexandr Domalchuk-Jónasson báru af í efsta flokki á NM í skólaskák. — Ljósmynd/Helgi Ólafsson

Síðustu einvígi átta manna úrslita á Síminn Invitational voru sýnd nú í kvöld á Sjónvarpi Símans og Netrásum Rafíþróttasambandsins. Þeir Vignir Vatnar Stefánsson og Aleksandr Domalchuk-Jonasson tryggðu sér farseðil í undanúrslit en þeir lögðu að velli Símon Þórhallsson og Hilmi Frey Heimisson.

Vignir lagði Símon að velli 3,5-0,5. Taflmennskan var á köflum glopótt og menn ekki í sínu besta formi. Vignir var seigari í einvíginu og t.a.m. vann hann fyrstu skákina eftir að hafa staðið höllum fæti og í skák númer tvö var Vignir líklegast með tapað tafl en sú skák endaði með jafntefli. Þegar Vignir náði í sigur í þriðju skákinni sem virtist ætla að vera tvísýn var ljóst í hvað stefndi og lokatölur 3,5-0,5.

Aleksandr náði góðum meðbyr í einvíginu við Hilmi snemma. Hilmir sprengdi sig í jafnteflislegu endatafli og svo datt dýnamísk skák hjá Aleksandr í tvísýnu tímahraki. Hilmir beit frá sér og minnkaði muninn í 2-1 í næstu skák.

Fjórða skákin í einvígi þeirra Sasha og Hilmis varð dramatísk. Eftir góða skák lét Aleksandr af sér manni í endatafli þar sem hann var peði yfir. Eins og svo oft áður gafst Aleksandr ekki upp, fann mátnetsgildru og náði að vinna skákina. Aðeins þurfti nú eitt jafntefli og það náðist í næstu skák og lokatölur 3,5-1,5 Aleksandr í vil.

Útsending kvöldsins:

Það er RÍSÍ sem heldur mótið í samstarfi við SÍ. Styrktaraðilar keppninnar eru Síminn, Lengjan, Collab og Ljósleiðarinn.

„Bracket“ mótsins má sjá hér að neðan:

16-manna úrslit:

9. janúar

  • Helgi Ólafsson – Halldór B. Halldórsson 4-0
  • Jóhann Hjartarson – Ingvar Þór Jóhannesson 2-4

26. janúar

  • Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir – Bragi Þorfinnsson 0-4
  • Helgi Áss Grétarsson – Hannes Hlífar Stefánsson 0-4
  • Björn Þorfinnsson – Aleksandr Domalchuk-Jonasson 4-2

9. febrúar

  • Davíð Kjartansson – Símon Þórhallsson 3-4
  • Hilmir Freyr Heimisson – Dagur Ragnarsson 3,5-2,5
  • Guðmundur Kjartansson – Vignir Vatnar Stefánsson 1-4

Átta manna úrslit:

9. mars

  • Bragi Þorfinnsson – Hannes Hlífar Stefánsson 2,5-3,5
  • Helgi Ólafsson – Ingvar Þór Jóhannesson 3,5-0,5

16. mars

  • Aleksandr – Hilmir 3,5-1,5
  • Vignir – Símon 3,5-0,5

Teflt verður á hverjum sunnudegi þar til mótinu lýkur 6. apríl með úrslitum.

- Auglýsing -