Íslensku keppendurnir fara nokkuð særðir inn í frídaginn á EM einstaklinga í Rúmeníu. Vignir Vatnar Stefánsson varð að sætta sig við enn eitt jafnteflið í dag á meðan að alþjóðlegi meistarinn Aleksandr Domalchuk-Jonasson laut í dúk með hvítu mönnunum gegn spænskum stórmeistara.

Vignir mætti serbneskum alþjóðlegum meistara kvenna, Sofia Pogorelskikh (2313). Skák Vignir var ekki beint en skv. okkar upplýsingum misreiknaði Vignir sig í miðtaflinu, taldi sig vera að fá gott tafl en sat þess í stað nánast uppi með tapað tafl.  Sú serbneska bauð jafntefli sem Vignir varð að taka.

Aleksandr hafði hvítt gegn GM Alvar Alonso Rosell. Skák þeirra varð mjög frumleg framan af en þegar leið á tók sá spænski undirtökin og bætti í jafnt og þétt þar til þjappan var orðin óbærileg. Aleksandr varð að sætta sig við tap.

Báðir hafa þeir 3 vinninga eða 50% að loknum sex umferðum. Á morgun er frídagur þar sem okkar menn ætla sér að hlaða batterín og koma sterkir til baka.

Keppendur á mótinu í ár eru alls 375 og er Vignir númer 69 í stigaröðinni en Aleksandr númer 179. Heimamaðurinn Bogdan-Daniel Deac (2692), sigurvegari á síðasta Reykjavíkurskákmóti, er stigahæstur og eins er Alexey Sarana (2689) alltaf líklegur en fyrir aðeins 2 árum vann hann þrjú mismunandi evrópumót á sama ári þ.e. með mismunandi tímamörkum og bæði einstaklings- og liðakeppni! Tefldar eru 11 umferðir með einum frídegi. Mikið er í húfi en 20 efstu skákmenn mótsins komast á Heimsbikarmótið sem fram fer síðar á þessu ári.

- Auglýsing -