Dagur Ragnarsson (2251) vann sína aðra skák í röð á Manar-mótinu í gær. Fórnarlambið var indverski alþjóðlegi meistarinn Sharma Hermant (2393). Vignir Vatnar Stefánsson (2291) gerði jafntefli við sænsku goðsögnina Piu Cramling (2465). Helgi Ólafsson (2510) tapaði sinni fyrstu skák þegar hann laut í dúk gegn Mickey Adams (2712) Gauti Páll Jónsson (2073) og Aron Þór Mai (2063) töpuðu.
Sjötta umferð fer fram í dag. Því miður verður enginn Íslendinganna í beinni. Helgi teflir við indverska alþjóðlega meistarann Fenil Shah (2411) og Dagur við ísraelska stórmeistarann Tamir Nabaty (2692).
Upplýsingar um árangur íslensku keppendanna má finna á Chess-Results.
Í Major-flokknum gerðu Arnar Heiðarsson (1782) og Alexander Oliver Mai (1995) jafntefli í innbyrðis skák en Stephan Briem (2038) tapaði. Stephan hefur 2 vinninga en hinir hafa 1½ vinning eftir 3 umferðir.


















