Fjöldi íslenskra skákmanna er nú staddur í Danmörku þar sem fjöldi lokaðra flokka fer fram. Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson og alþjóðlegi meistarinn Dagur Ragnarsson hófu leik í dag og komust þokkalega undan tvöfaldri umferð.
Lítum fyrst á titilhafana áður en við rennum yfir hina Íslendingana í lok fréttar.
Vignir byrjaði ekki vel, tapaði gegn alþjóðlega meistaranum Nikolai Kistrup. Staðan í miðtaflinu var strategískt erfið en líklegast erfiðara fyrir hvítt að finna réttu leiðina. Vignir gerði það ekki og missti tökin og miðborðspeð svarts urðu að algjörum skrímslum sem engin leið var að ráða við.
Dagur byrjaði með traustu jafntefli með svörtu mönnunum. Dagur var aldrei í neinni hættu og ef einhver færi voru til staðar voru þau klárlega hjá svörtum. Þýski alþjóðlegi meistarinn náði þó að stýra jafnteflinu í hús með hvítu.
Vignir náði mun betur útfærðri skák í 2. umferð en þar vann hann gegn Harry Grieve. Byrjunin var einhverskonar Jobava-London með skiptum litum. Vignir hélt betri stjórn en í 1. umferðinni og náði að stýra skákinni sér í hag. Í lokin kom flottur „Fréttablaðsleikur“
37.Hf3! og hvítur vann fljótlega.
Önnur umferðin var góð fyrir Íslendingana. Dagur náði góðum úrslitum en hann lagði sænska stórmeistarann Ralf Akeson. Dagur náði snemma góðri stöðu og hafði alltaf undirtökin í skákinni. Dagur byrjar vel og er að tefla þétt!
Vignir hefur 1 vinning eftir 2 skákir, þó báðar með hvítu. Dagur hefur 1,5 vinning og má vel við una og er að tefla vel!
Á morgun halda þeir félagar áfram í GM-flokknum en fjöldi Íslendinga hefur svo taflmennsku á morgun.
Adam Omarsson og Lenka Ptacnikova tefla bæði í Masters 3 flokknum þar sem allir keppendur eru á stigabilinu 2123 til 2158. Mjög jafn og spennandi flokkur!
Björn Hólm Birkisson er í Masters 4 þar sem keppendur eru á bilinu 2107-2123.
Josef Omarsson teflir í Masters 7 þar sem keppendur eru á stigabilinu 2008-2030.
Unnar Ingvarsson tekur þátt í Basic 3 flokknum þar sem keppendur eru á bilinu 1796-1819.
Erlingur Jensson tekur þátt í Basic 4 flokknum þar sem keppendur eru á bilinu 1750-1796.
Lárus H. Bjarnason tekur þátt í Basic 5 flokknum þar sem keppendur eru á bilinu 1713-1750.
Taflmennska í Masters og Basic flokkum hefst á morgun en þá fer jafnframt fram 3. umferð í GM flokknum.














