Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, forseti Skáksambands Íslands

Jóhanna Björg Jóhannsdóttir hefur formlega tilkynnt framboð sitt til forseta Skáksambands Íslands. Hún hefur starfað ötullega innan hreyfingarinnar síðastliðin fimm ár, m.a. sem varaforseti SÍ, formaður kvennaskáknefndar og stjórnarformaður Skákskóla Íslands.

Í stefnuyfirlýsingu sinni (sjá: Kynningarbréf og stefnuyfirlýsing, 3. júní 2025) kynnir hún skýra framtíðarsýn sem snýr að:

  • Börnum og unglingum: Jafnt aðgengi að æfingum, stuðningur við afreksbörn og áfengisbann á viðburðum þar sem börn eru.
  • Afreksfólki: Sterkari rammi utan um landslið og markvissari þjálfun.
  • Konum og stúlkum: Bætt aðstaða, aukin þátttaka og aukið öryggi í skákumhverfinu.
  • Landsbyggðinni: Tækniþróun, fjöldi móta og stuðningur utan höfuðborgarsvæðisins.
  • Fagmennsku og fræðslu: Útgáfa handbókar fyrir skákstarf, fjölgun reglulegra námskeiða og aukin þekkingardeiling.
  • Skáksögunni: Skönnun og varðveisla eldri útgáfa tímarita og heimilda Skáksambandsins.

Ég vil vera leiðtogi sem hlustar, sameinar og skapar aðstæður þar sem allir geta blómstrað – þar á meðal börn, konur, landsbyggðin, hinn almenni skákmaður og afreksfólk.“ segir Jóhanna í lok stefnuyfirlýsingarinnar.

- Auglýsing -