Hinir heltraustu félagsmenn Skákfélags Akureyrar þeir Stefán Bergsson og Halldór B. Halldórsson sitja nú að tafli á Spáni, nánar tiltekið í Valencia. Báðir hafa þeir 1,5 vinning að loknum 4 umferðum á þessu sterka móti.
Alls taka 137 skákmenn þátt og eru 26 þeirra yfir 2400 elóstigum. Akureyringarnir eru í raun nokkuð neðarlega í styrkleikaröðinni en Stefán er númer 93 í röðinni en Halldór númer 100 í styrkleikaröðuninni.
Hingað til hafa þeir nokkurn veginn unnið stigalægri skákmenn en tapað fyrir stigahærri skákmönnum, með einni undantekningu, jafntefli hjá Stefáni í 1. umferð gegn stigalægri skákmanni.
Úrslit þeirra félaga það sem af er móti:


Tefld er ein skák á dag og lýkur mótinu á sunnudag. Við sendum baráttukveðjur á þessa miklu höfðingja!
- Upplýsingasíða mótsins (úrslit, paranir o.fl.)
- Skákir á lichess (bara efstu borð)















