Alþjóðlegu meistararnir Hilmir Freyr Heimisson og Dagur Ragnarsson eru nú staddir í „Stóra eplinu“ og tefla í lokuðum IM-flokkum. Teflt er í Marshall skákklúbbnum og ber mótið heitið „Marshall Summer Six Day“ og er eins og nafnið gefur til kynna keyrt í gegn á sex dögum, þrír dagar tvöfaldir keppnisdagar.

Báðir eru þeir þriðju stigahæstu í sínum flokkum og þurfa því ágætis skor til að halda sínum stigum eða græða stig. Í gær fór fram fyrsti tvöfaldi dagurinn, 2. og 3. umferð voru tefld.

Hilmir náði í sigur í 2. umferðinni í fyrri skákinni en fór Krísuvíkurleiðina! Hilmir var undir mikilli pressu í miðtaflinu og líklegast með hartnær tapað tafl á kafla. Hilmir setti hinsvegar í varnargírinn…“move by move!“…og náði að snúa taflinu sér í vil. Fín úrslit gegn ungum Bandaríkjamanni Mottola með 2247 elóstig.

Í seinni skákinni var Hilmir ekkert að reyna að rugga bátnum með svart gegn GM Yudasin. Yudasin tefldi uppskiptaafbrigðið gegn slavneskri vörn og jafnteflið varð stutt.

Hilmir því með 2,5 af 3 í þessum flokki og í góðum málum.

Flokkur Dags:

Dagur gerði tvö jafntefli á tvöfalda deginum og hefur 2 vinning af 3 í þokkalegum málum.

Dagur og Hilmir tefla aftur tvær skákir í dag!

- Auglýsing -