Úrslitakeppni Íslandsmóts Símans í netskák 2025 heldur áfram í kvöld með tveimur viðureignum í 16-manna úrslitum. Útsendingin hefst 19:00 og einvígin fljótlega eftir það. Ingvar Þór og Helgi Áss munu sjá um útsendinguna að þessu sinni þar sem Björn Ívar er fjarverandi á NM í Finnlandi.
Í fyrri viðureign kvöldsins mætast:
- Róbert Lagerman – Jón Kristinn Þorgeirsson (hefst kl. 19)
Lengjan telur Jón Kristinn (Jokkó) líklegri, hefur stuðul um 1.45 gegn 2.37 hjá Róbert. Hér mætast skákmenn af sitthvorri kynslóðinni. Róbert einstaklega hæfileikaríkur skákmaður sem hefur farið mikinn á hraðskákmótum undanfarið. Spekingar telja hinsvegar að netskákin lúti öðrum lögmálum og komi til „handalögmála“ með músina mun Jokkó vera líklegri. Jokkó er mjög stigahár í hinum svokölluðu bullet-skákum sem eru hröðustu skákir internetsins. Menn mega þó passa sig að vanmeta menn á vizkualdrinum!
- Dagur Ragnarsson – Björn Þorfinnsson (hefst strax að fyrri viðureign lokinni)
Á Lengjunni er Björn talinn líklegri, 1.5 gegn 2.23 hjá Degi. Hér mætast menn af sitthvorri kynslóðinni en Björn hefur samt verið að standa sig mjög vel á netinu og af þeim sökum er hann talinn líklegri. Dagur hefur náð betri árangri í kappskák undanfarið og var á þeim forsendum valinn í íslenska landsliðið sem fer til Georgíu í næsta mánuði. Björn vill vafalítið sanna sig í þessari viðureign og næstum er hægt að tryggja að dramatíkin verður mikil!
Hægt er að fylgjast með á Sjónvarpi Símans eða á YouTube rás RÍSÍ eða Twitch Rási RÍSÍ
Viðureignir í 16 manna úrslitum
Drátturinn fyrir 16 manna úrslitum, sem fram fara á sunnudögum í september. Viðureignirnar, raðaðar í dagsetningarröð, raðaðist á eftirfarandi hátt:
- 7. september: Símon Þórhallsson – Bárður Örn Birkisson 4½ – 3½
- 7. september: Bragi Þorfinnsson – Dagur Andri Friðgeirsson 3½ – ½
- 14. september: Róbert Lagerman – Jón Kristinn Þorgeirsson
- 14. september: Dagur Ragnarsson – Björn Þorfinnsson
- 21. september: Helgi Áss Grétarsson – Björn Hólm Birkisson
- 21. september: Vignir Vatnar Stefánsson – Aleksandr Domalchuk-Jonasson
- 28. september: Birkir Ísak Jóhannsson – Jóhann Hjartarson
- 28. september: Jóhanna Björg Jóhannsdóttir – Ingvar Þór Jóhannesson
Í átta manna úrslitum mætast
- Bárður – Birkir-Jóhann
- Dagur R-Björn Þ – Bragi
- Róbert-Jón Kristinn – Helgi Áss-Björn Hólm
- Jóhanna-Ingvar Þór – Vignir-Aleksandr
Dagskrá
Mótið fer fram á sunnudögum frá 7. september til 30. nóvember 2025, samkvæmt eftirfarandi dagskrá:
7. september 2025:Netskák dagur 1 (16 manna úrslit, 6 skákir)- 14. september 2025: Netskák dagur 2 (16 manna úrslit, 6 skákir)
- 21. september 2025: Netskák dagur 3 (16 manna úrslit, 6 skákir)
- 28. september 2025: Netskák dagur 4 (16 manna úrslit, 6 skákir)
- 2. nóvember 2025: Netskák dagur 5 (8 manna úrslit, 6 skákir)
- 9. nóvember 2025: Netskák dagur 6 (8 manna úrslit, 6 skákir)
- 23. nóvember 2025: Netskák dagur 7 (undanúrslit, 6 skákir)
- 30. nóvember 2025: Netskák dagur 8 (úrslit, 10 skákir)
Tímamörk verða 3+2 og nákvæmar tímasetningar útsendinga verða tilkynntar síðar. Mótið fylgir útsláttarfyrirkomulagi, þar sem keppendur detta út eftir tap þar til einn stendur uppi sem sigurvegari.
Verðlaun
Verðlaunafé mótsins hefur verið hækkað um 100.000 kr. og er nú sem hér segir:
- 200.000 kr.
- 100.000 kr.
- 25.000 kr.
- 25.000 kr.
















