Skákdeild KR hélt sitt fimmta barnaskákmót sunnudaginn 12. október sl. sem jafnframt var það fjölmennasta sem hefur verið haldið. Þátttakendur voru 74 og kom greinilega ekki að sök þótt færa þurfti mótið með stuttum fyrirvara frá laugardegi yfir á sunnudaginn. Boðið var upp á indverska grænmetisrétti við upphaf mótsins sem mæltist vel fyrir.
Keppt var tveimur flokkum 1.– 3. bekkur og 4-9. bekkur. Eins og á mótinu í september var eldri flokkurinn fjölmennari með 41 keppendum meðan 33 voru í yngri flokki. Taflmennskan var töluvert betri en á fyrsta mótinu í haust og sáust víða góð tilþrif og þá sérstaklega á efri borðum í eldri flokki.
Eldri flokkinn vann Tristan Fannar jónsson 6,5v. í sjö skákum og gerði jafntefli í lokaumferðinni við Anh Hai Tran sem endaði þriðja sæti með 5,5v. Þá sá Rakshat Murali Krishna sér leik á borði og náði öðru sætinu með 6v. eftir sigur í lokaumferðinni.
Í yngri flokki sigraði Róbert Heiðar Skúlason með fullu húsi 7 vinninga í sjö skákum. Róbert sigraði einnig í mótinu í september tefldi núna mun betur þó hann hefði gefið einhver færi á sér sem ekki voru nýtt. Eins og í september var Helgi Fannar Óðinsson annar með 6v. Töluverð spenna var fyrir verðlaunaafhendingu um hver myndi lenda í 3. sætinu því 5 keppendur höfðu 5 vinninga. Þriðji sætið kom í hlut Theodór Nóel Schram með 5v. og fleiri oddastig en Emilía Klara Tómasdóttir, Patrekur Einarsson, Tauras Nareika og Jón Fenrir Ragnarsson sem einnig fengu 5v.
Skákdeild KR þakkar keppendum fyrir þátttökuna og öllum þeim sem lögðu hönd á plóg fyrir þeirra hlut sem var ómetanlegur. Nánari upplýsingar um öll úrslit eru hér fyrir neðan:
Barnaskákmót KR október 2025 – yngri flokkur
Barnaskákmót KR október 2025 – eldri flokkur















