Kristján Örn Elíasson, alþjóðlegur skákdómari, útvarpsmaður, sigurvegari c-flokks Haustmóts TR og virkasti skákmaður landsins, sem er í mikilli framför hefur í tvö ár stjórnað, ákaflega vel heppnuðum, vikulegum útvarpsþáttum, á miðvikudögum, á Útvarpi Sögu – sem heita; Við skákborðið. Gaman að þessu.

Í gær mætti Gunnar Freyr Rúnarsson í Skipholtið og en Halldór Grétar Einarsson tók upp símtólið.

Í kynningu um þáttinn segir:

Gestir skákþáttarins eru Gunnar Freyr Rúnarsson formaður Víkingaklúbbsins og Halldór Grétar Einarsson, FIDE meistari og formaður meistaraflokksráðs Breiðabliks. Gunnar ræðir sögu Víkingaskákarinnar á Íslandi en það var hugvitsmaðurinn Magnús Ólafsson sem fann upp Víkingaskákina árið 1967. Hugmyndina fékk hann þegar hann sá sexhyrnda ró í skrúfuhrúgu en Magnús hafði áður fengið þá hugmynd að hanna séríslenskt manntafl og var niðurstaða hans stórmerkileg. Halldór Grétar kemur símleiðis inn í síðari hluta þáttarins og ræðir árangur íslensku liðanna á Evrópumót landsliða sem lauk í Batumi í Georgíu í gær. 

Eldri þætti má nálgast hér á Spotity.

- Auglýsing -