Vestmannaeyingar eru enn efstir í úrvalsdeild á Íslandsmóti Skákfélaga og hafa örlögin í eigin höndum eftir sigur í umferð dagsins. Taflfélag Reykjavíkur hefur bjargað sér frá falli og eru miklir örlagavaldar í úrvaldsdeildinni, eiga eftir að tefla við bæði efstu liðin.

Baráttan í 1. deild um sæti í úrvalsdeildinni er grjóthörð og spenna í flestum deildum um það hverjir fara upp. Mikil spenna og barátta framundan í Rimaskólanum.

Úrvalsdeild

Skákdeild Fjölnis – Skákdeild KR

Fjölnismenn náðu að leggja KR-inga að velli og liggur nú ljóst fyrir að titilbaráttan er á milli Fjölnis og Vestmannaeyinga. Fjölnismenn þurfa að treysta á hjálp frá öðrum en Vestmannayejar eiga erfiða viðureign framundan í 9. umferðinni gegn TR.

Mikið var um jafntefli en sigur afmælisbarnsins Olivers Arons skildi á milli. Oliver tefldi byrjunina vel og nýtti sér taktískt færi í miðtaflinu eftir slakan leik 18…Bd8??

19.Rb5! var góður 19…Hb7 20.Hxa6 Hxa6 21.Hxa6 Hxb5 22.Ha8 fellur biskupinn á d8 næst og hvítur hefur unnið mikilvægt peð sem dugði Oliver til sigurs, þó eftir langa baráttu hjá Andrei í vörninni.

Athyglisvert að KR sem voru efstir og taplausir eftir fyrri hlutann hafa tapað öllum viðureignum sínum í upphafi seinni hlutans og eru úr leik í titilbaráttunni.

Taflfélag Vestmannaeyja – Víkingaklúbburinn

Vestmannaeyingar héldu dampi og kláruðu skildusigurinn gegn Víkingaklúbbnum. Jóhann og Örn Leó hvíldu en það kom ekki að sök. Björn Þorfinnsson er í banastuði og hefur unnið allar þrjár skákir sínar. Bæði hann og Simon Williams hafa teflt skemmtilegan sóknarstíl fyrir Eyjamenn og hér fylgja skákir þeirra sem lögðu grunninn að þessum mikilvæga sigri.

Mikilvægur sigur og Vestmannaeyingar hafa örlögin algjörlega í eigin höndum.

Breiðablik – Taflfélag Reykjavíkur

TR-ingar náðu að redda fallinu. Jafntefli urðu á öllum borðum en Margeir í banastuði (3 af 3) og Jón Viktor tryggðu sigurinnn. Öfugt við KR þá töpuðu TR öllum viðureignum í fyrri hlutanum en hafa snúið við blaðinu og unnið allar þrjár í seinni hlutanum.

Skák Margeirs:


Birkir Ísak Jóhannsson hefur staðið sig vel hjá Breiðablik og nægir nú hálfur vinningur í lokaumferðunum tveimur til að ná sínum fyrsta áfanga að alþjóðlegum meistaratitli!

Staðan

Vestmannaeyingar enn efstir en þeirra bíður uppgjör við TR-inga, tvö heitustu lið seinni hlutans. Sigur hjá Vestmannaeyjum færir þá með níu putta á bikarinn en tapi þeir verða þeir að treysta á að TR haldi áfram sigurgöngu sinni gegn Fjölni í lokaumferðinni. Spenna framundan!

1. deild

Baráttan um úrvalsdeildarsætið ætlar að verða æsispennandi á milli Taflfélags Garðabæjar og Skákfélags Akureyrar.  Báðar sveit hafa unnið allar sínar viðureignir og unnu báðar stórsigra í fyrri viðureign laugardagsins. Sveitirnar mætast á sunnudeginum í úrslitaviðureign þar sem allt verður undir. Seinni umferð dagsins er mikilvæg fyrir bæði lið upp á oddastig þar sem öðru liðinu gæti þá nægt jafntefli í lokaumferðinni.

2. deild

Spennan er mikil í 2. deild í baráttunni um titilinn sem stendur milli TG-b og Dímon. TG-b styrktu oddastig sín vel með 1-5 sigri á Breiðablik c-sveit.

3. deild

Skákfélag Íslands er orðið öruggt um að fara upp um deild, enda ekki skrýtið með FIDE meistarana Róbert Lagerman og Tómas Björnsson á efsta borði. Þeir unnu stórsigur í fyrri viðureign dagsins.  Víkingaklúbburinn er í 2. sæti og standa nokkuð vel að vígi.

4. deild

Mislyndu biskuparnir með FIDE meistarana Sigurð Daða og Andra Áss á efstu borðunum virðast ætla að sigla í gegnum 4. deildina og unnu 4,5-1,5 gegn KR-d í fyrri umferð dagsins. Baráttan um 2. sætið er hörð en þar standa Dímon b-sveit best að vígi.

Beinar útsendingar (þó með 15 mínútna seinkun) hefjast kl. 19:15.

Íslandsmót Skákfélaga 2026

- Auglýsing -