Áttunda umferð úrvalsdeildar hefst kl. 11 og 5. umferð í öðrum deildum. Mikil spenna er í öllum deildum. Ingvar fór yfir gang mála í gær í frétt í nótt um úrvalsdeild. Eyjamenn er skyndilega orðnir efstir hafa 10 stig. Fjölnir og KR hafa 9 stig.

Minnum á í dag verða tefldar tvær umferðir sem hefjast kl. 11 og 17:30.

Við einbeinum okkur því mest af öðrum deildum en byrjum samt lauslega á Úrvalsdeild.

Staðan

KR og Fjölnir mætast í dag í viðureign dagsins á meðan Eyjamenn mæta neðsta liðinu Víkingaklúbbnum. Breiðablik og TR mætast einnig í mikilvægari viðureign um að fjarlægja sig fallsætinu.

Beinar útsendingar hefjast kl. 11:15

  1. deild

TG og SA eru efstu með fullt hús stiga. TR-b er í þriðja sæti. Þessi lið berjast um sigurinn og sæti í úrvalsdeild en TR-b getur ekki farið upp nema að a-sveitin þeirra falli! Liðin eiga eftir mætast alfarið innbyrðis. Stefnir í afar harða og skemmtilega keppni

TR-c og SA-b eru í fallsætum. TR-ingar eru mun sterkari í síðari hlutanum og því gæti c-sveitin bjargað sér þrátt fyrir vera að vera langneðstir.


Mótið á Chess-Results

2. deild

TG-b og Dímon eru á toppnum en c-sveit breiðabliks er í þriðja sæti. Þessi 3 lið berjast um tvö efstu sætin sem gefa sæti í úrvalsdeild að ári.

Botnbaráttan gæti verið mjög spennandi en fjögur neðstu liðin eiga mikið eftir að mætast innbyrðis og úrslitin því engan vegin ráðin.

Mótið á Chess-Results

3. deild

Skákfélag Íslands virðist vera í afar vænlegri stöðu á toppnum. B-sveit Víkingaklúbbsins og c-sveit SA berjast ásamt þeim um sætin tvö í 2. deild

Snæfellingar virðist vera í vonlítilli stöðu í botninum.

Mótið á Chess-Results

4. deild

Tvö lið hafa dregið sig úr mótinu. C-sveit SFÍ og Grindavíkingar.

64 mislyndir eru efstir og munu vinna deildina. Mikil baráttta er um hitt sætið sem gefur keppnisrétt í þriðju deild.

Mótið á Chess-REsults

 

- Auglýsing -