Ég hef oft stundum notað orðatiltækið í fyrirsögninni til að hvetja mína menn til dáða í aðdraganda keppni við okkur stigahærri lið. Í seinni hluta Íslandsmóts skákfélaga þurftum við í a-sveit Taflfélags Vestmannaeyja að kljást við þrjú stigahærri lið, það er að segja KR, Fjölni og TR.
Undirritaður hefur verið liðsstjóri og liðsmaður a-liðs Taflfélags Vestmannaeyja meira og minna frá árinu 2009 þegar Karl Gauti Hjaltason, þáverandi formaður félagsins, bað mig um að taka við liðinu. Við höfum gert nokkrar atlögur að Íslandsmeistaratitlinum á þessum árum. Nokkrum sinnum urðum við í 2. sæti þannig að titillinn í ár var langþráður.
Að setja saman sigurlið í Úrvalsdeildinni er snúið en skemmtilegt verkefni sem gengur ekki endilega út á að safna saman stigaháum skákmönnum. Okkar lið þetta árið var það elsta í deildinni og reynslan því mikil á öllum borðum. Nú er því oft haldið fram að skákgeta manna minnki með hækkandi aldri en ég held að okkur hafi tekist að afsanna það að einhverju leyti þetta árið. Ég minnist orða Jóns Þorvaldssonar, skákfrömuðar, sem gjarnan ávarpar menn sem eru komnir til ára sinna með orðunum: „Þú glæsilega ungmenni“!
Liðsmennirnir Jóhann Hjartarson, Guðmundur Gíslason og Jóhann Ingvason eru allir komnir yfir miðjan aldur en eru samt sem áður miklir baráttumenn á skákborðinu og gefa sig aldrei fyrr en í fulla hnefana. Við Helgi Ólafsson erum svo á sjötugsaldri, báðir fæddir í ljónsmerkinu sem þýðir að við látum ekki vaða yfir okkur á skítugum skónum án þess að rísa upp á afturfæturnar!
Jóhann og Helgi mynda svo hryggjarstykkið í liðinu með alla sína dýrmætu reynslu sem þeir miðla fúslega til okkar minni spámannanna í liðinu.
Örn Leó Jóhannsson, Jamie Santos Latasa og Abhijeet Gupta eru svo ungu mennirnir í liðinu og allir mjög baráttuglaðir. Örn Leó sýndi í þessu móti, svo ekki verður um villst, að skákhæfileikar hans eru miklir og ekki skortir seigluna í þann dreng. Jamie og Abhijeet eru svo atvinnumenn fram í fingurgóma.
Ekki má gleyma Birni Þorfinnssyni sem er listamaðurinn sem getur teflt bæði skemmtilega og vel þegar hann er í stuði. Hann er að sama skapi skákmaður sem liðsstjóri eins og ég áttar sig ekki alltaf á. Ég veit aldrei hverju er von á í hans skákum þar sem uppátæki hans á borðinu eru oft á tíðum óútreiknanleg en í því felst styrkur hans sem hann sýndi svo sannarlega í þetta sinn.
Sama má reyndar segja um Simon Williams sem reyndist okkur mjög drjúgur um helgina enda góður liðsmaður sem hagar alltaf seglum eftir því hvernig staðan er á öðrum borðum liðsins.
Eiginleikar allra þessa liðsmanna mynda svo sterka liðsheild sem náði einstaklega vel saman um helgina. Við snæddum saman hádegisverð fyrir 1. umferðina þar sem ég sem liðsstjóri lagði áherslu á „að við yrðum að vinna allar okkar viðureignir til að eiga möguleika á Íslandsmeistaratitlinum, það væri markmiðið okkar á 100 ára afmælisárinu og afmælisgjöf okkar liðsmanna til félagsins.“
Þessi orð mín virðast hafa fallið í góðan jarðveg því það var einmitt það sem gerðist og allir gáfu allt í verkefnið og rúmlega það frá fyrstu skák til hinnar síðustu.
Hér í framhaldinu ætla ég aðeins að fjalla um viðureignir helgarinnar.
Taflfélag Vestmannaeyja – Skákdeild KR: 5 -3
Nú mættum við efsta liðinu. KR-ingarnir mættu með tvo ofurstórmeistara til leiks en það teljast skákmenn sem eru með meira en 2600 elóstig. Andstæðingar okkar voru sem sagt stigahærri á 6 borðum af 8 þannig að þetta var dálitið Davíð gegn Golíat viðureign.
Við vorum búnir að ræða það að okkar tækifæri væru fyrst og fremst á neðri borðunum enda fór það þannig að við fengum 3,5 vinning á neðstu fjórum borðunum og náðum svo að halda sjó á þeim fjórum efstu.
Guðmundur Gíslason tefldi lengstu skákina í þessari viðureign og sýndi enn og aftur úr hverju hann er gerður með því að vinna mikinn seiglusigur í 90 leikjum og 5 klukkustunda skák. Það eru einmitt svona seiglusigrar sem blása öðrum liðsmönnum stríðsanda í brljóst.
Taflfélag Vestmannaeyja – Skákdeild Fjölnis: 5 – 3
Fjölnismenn voru nú komnir í efsta sætið og eftir sigur okkar gegn KR og talaði ég um það við liðsmenn að við þyrftum að ná okkur niður á jörðina eftir sigurvímuna. Það var mikil barátta á öllum borðum í þessari viðureign. Sex skákir enduðu með jafntefli en Abhijeet og Björn unnu góða sigra sem tryggðu sigurinn. Enn og aftur vorum við stigalægri en andstæðingarnir en nú á 5 borðum af 8.
Eftir þennan sigur vorum við komnir í efsta sætið og áfram gilti því að halda sér á jörðinni og halda ótrauðir áfram í átt að markmiðinu okkar. Ég lagði sérstaka áherslu á það við erlendu meistarana í liðinu þegar ég var að keyra þá til og frá skákstað að „our mission wasn´t completed yet“ og við þyrftum að vera einbeittir alla leiðina í mark.
Taflfélag Vestmannaeyja – Víkingaklúbburinn: 5.5 – 2,5
Fyrra þessa viðureign lagði ég áherslu á að við mættum ekki vanmeta Víkingana. Abhijeet, Simon og Björn unnu sínar skákir en hinar 5 skákirnar enduðu með jafntefli. Þessi sigur virtist á blaðinu hafa verið nokkuð öruggur sem var reyndar ekki raunin þar sem við þurftum að hafa vel fyrir hlutunum í þessari viðureign. Nú vorum við farnir að sjá markið fyrir framan okkur en framundan voru tvær erfiðustu viðureignir helgarinnar.
Taflfélag Vestmannaeyja – Taflfélag Reykjavíkur: 4,5 – 3,5
Hér var barist til síðasta blóðdropa á öllum borðum enda stilltu TR-ingarnir upp firnasterku liði og voru stigahærri en okkar lið á 5 borðum af 8. Hér voru það Abhijeet og Örn Leó sem skópu sigurinn með vinningsskákum sínum.
Jóhann Hjartarson stóð lengi höllum fæti en tókst að sigla skákinni í jafnteflishöfn með mikilli útsjónarsemi. Það er mikilvægt í svona keppni að menn berjist í lélegu stöðunum þar sem hálfir vinningar hér og þar telja og svo er það gott fyrir liðsheildina þegar hinir sjá sína menn berjast og ná að bjarga sér fyrir horn.
Nú var komið að síðustu umferðinni og við áttum að tefla við Breiðablik. Á pappírnum hefði þetta átt að vera auðveld viðureign en annað koma á daginn eins og mig, liðsstjórann, hafði sterklega grunað.
Taflfélag Vestmannaeyja – Skákdeild Breiðabliks 4,5 – 3,5
Þetta var tæpasti sigurinn um helgina. Ég kom inn í liðið í þessari umferð en fylgdist samt sem áður náið með á öllum borðum sem er stundum snúið þegar maður er sjálfur að tefla. Segja má að hagur okkar hafi vænkast áður en umferðin hófst en liðsstjóri Breiðabliks gerði mistök og skráði lið sitt ranglega til leiks. Þetta gerði það að verkum að Breiðablik varð að skilja eftir autt borð á 2. borði og við komnir í 1-0 áður en klukkurnar voru ræstar!
Eftir á að hyggja fannst mér þetta vera bjarnargreiði þar sem ró okkar manna raskaðist verulega við þetta og svona vinningar eru aldrei góðir á bragðið!
Nú tók við svakaleg barátta á öllum borðum. Mér var ekki rótt þegar Jóhann og Helgi töpuðu á svo til sama tíma en Jamie og Björn héldu uppi okkar merkjum og unnu báðir. Staðan var því 3-2 okkur í vil.
Þá voru þrjár skákir eftir; hjá undirrituðum, Guðmundi og Erni Léo og við þurftum að halda jöfnu í þessum þremur skákum til að vinna viðureignina og verða Íslandsmeistarar. Við Guðmundur vorum nokkuð öruggir með skiptan hlut en eftir sat Örn Leó með það mikilvæga verkefni að tryggja okkur hinn langþráða titil með jafntefli.
Sjaldan hefur eitt jafntefli haft eins mikla þýðingu og í þetta sinn. Örn Leó var peði undir og undir mikilli pressu því tap þýddi annað sætið. Örn Leó stóðst prófið eins og svo oft áður og sigldi jafnteflinu og titlinum í örugga höfn.
Þakkir
Ég vil nota tækifærið til að þakka öllum liðsmönnum sveitarinnar fyrir sitt framlag í þessari keppni því þetta var svo sannarlega sigur liðsheildarinnar. Þegar sumum gekk illa öxluðu aðrir ábyrgð fyrir liðið og öfugt þannig að úr varð sigursælt lið sem ég er stoltur af að hafa fengið tækifæri til að stýra.
Það að vinna allar viðureignirnar, þar af þrjár gegn stigahærri liðum, er ekki hrist fram úr erminni.
Auk þess vorum við með þrjá erlenda meistara í okkar liði þegar okkar helstu keppinautar voru með fjóra.
Ég vil að lokum sérstaklega þakka styrkaraðilum fyrir þeirra stuðning og jafnframt þakka ég Ægi Páli Friðbertssyni, Páli Magnússyni, Karli Gauta Hjaltasyni, Lúðvík Bergvinssyni, Birni Þorfinnssyni og Arnari Sigurmundssyni fyrir þeirra mikilvæga framlag fyrir liðið.
Þorsteinn Þorsteinsson
Liðsmaður og liðsstjóri Taflfélags Vestmannayja















