Í dag hófst í Mónakó alþjóðleg unglingakeppni, 13. ChessMates mótið en Chessmates er alþjóðlegur félagsskapur sem Skáksamband Íslands er hluti af. Átta lið senda til leiks sveitir skipaða 10 krökkum á mismunandi aldursbilum. Keppt er í riðlum og svo til úrslita. Íslensku ungmennin unnu góðan 6-4 sigur á írsku sveitinni og átti mjög góða spretti á mörgum borðum!

Ísland – Írland 6-4

Íslensku ungmennin mættu sveit Íra í fyrstu umferð en fyrsta Chessmates keppni Íslands var einmitt á Írlandi 2023. Með liðunum í riðli eru svo gestalið Ítalíu og lið Rotterdamse Schaakbond. Í hinum riðlinum eru England, Eistland, Sachsen-Anhalt og Mónakó.

U20

Fínn sigur hjá Ingvari Wu í þessari umferð gegn titilhafa

Vel gekk á U20 borðunum (tvö efstu) þar sem þeir Ingvar Wu og Benedikt Þórisson unnu báðir sínar skákir. Íslenska liðið hefur yfir mikilli keppnisreynslu að búa á þessum borðum og gæti það orðið mikilvægt á þessu móti.

Ingvar Wu lagði FIDE-meistara að velli með mjög þéttri taflmennsku með hvítu. Ingvar var alltaf að tefla upp á tvö úrslit og hafði betra nánast alla skákina. Á einhverjum tímapunkti var svartur mögulega með jafnt í tölvunum en það er oft erfitt að vera undir pressu alla skákina og í lokin lék Jason Liu sig meira og minna í mát.

Sigur Benedikts var einnig nokkuð auðveldur og greinilegur styrkleikamunur á keppendum þar.

U18

Markúsarnir tóku einn vinning í hús. Að þessu sinn var það Markús Orri Óskarsson. Markús eins og svo oft áður búinn að lesa andstæðing sinn vel, átti von á Nimzo-indverskri vörn og skellti á hann línu með 10.Ba2 sem var allt á eldhúsborðinu…breytti þar útaf sinni venjulegu línu. Skemmtileg skák þar sem dýnamýkin var hvítum í hag og skemmtileg hvernig hvítur fangaði drottningu svarts.

Markús Orri Jóhanns tapaði í hörku baráttuskák sem gat dottið hvorum megin sem var.

U16

Fyrirfram hefði mátt búast við betri uppskeru í þessum flokki en Josef tapaði sinni skák eftir óvenjulega taktík andstæðingsins. Guðrún var með góð vinningsfæri en missti þráðinn í tímahraki og jafntefli niðurstaðan.

U14

Fín frumraun hjá Emil

Hér fengum við tvo vinninga í hús. Emil náði góðri frumraun, undirbjó sig vel og fékk fína stöðu og vann eftir töluverða baráttu þar sem andstæðingur hans féll á tíma.

Birkir hefur mikla keppnisreynslu þrátt fyrir ungan aldur og tefldi skemmtilega skák við efnilegan strák í írsku sveitinni. Birkir tók slaginn og hentum við í skemmtilegan „SOS“ (secrets of opening surprises) varínt gegn Sveshnikov. Birkir fékk betra og náði andstæðingnum úr „comfort zone“. Skákin þó grjóthörð barátta og Birkir þurfti að hafa mikið fyrir sigrinum. Staðan mjög áhugaverð á kafla með hrók og tvo biskupa fyrir drottningu og peð. Birkir komst út úr drullusvaðinu á undan andstæðingnum!

U12

Pétur slapp með skrekkinn eftir smá rúlluskautaskák í dreka-afbrigðinu með hvítu

Jafntefli kom í hús í U12. Dagur Sverrisson tapaði sinni skák. Dagur notaði tímann sinn vel en vantaði að fylgja aðeins betur eftir mannsfórn gegn ítalska leiknum til að fá nægjanleg færi. Pétur virtist ætla að fara sömu leið, fórnaði manni og hafði ekki nægar bætur.

Pétur vildi meina að þetta hefði aldrei verið í hættu en liðsstjóri ekki endilega alveg sammála.

Þetta reddaðist hinsvegar allt saman eftir að svartur fór í drottningakaup of snemma (redúseraði primitíft!). 44.Hxg7 reddaði málum hér! 44…Hxb2+ 45.Bxb2 Kxg7 46.Bxe5 og hvítur heldur jafnteflinu auðveldlega.

Úrslit 1. umferðar


Fínn sigur gegn sveit sem er með næstflest meðalstig á mótinu og stigahærri á flestum borðum. Allir vel gíraðir í fyrstu umferðinni.

Viðureign morgundagsins:

Næst á dagskrá er ítalska sveitin, nánar tiltekið frá Feneyjarsvæðinu. Þessi sveit tapaði 1-9 gegn sveit Rotterdam sem Ísland mætir svo í lokaviðureign riðlakeppninnar. Vinni Ísland í fyrri umferðinni er sveitin nánast komin áfram í efri grúppuna í síðustu tvær umferðirnar þar sem teflt er um sigur á mótinu. Þessi viðureign er 10:00 í fyrramálið 09:00 að íslenskum tíma. Seinni viðureignin svo 16:00 (15:00 íslenskum).

Fylgstu með!

Teflt er í skákklúbbnum í Mónakó

Fyrirkomulag:

  • 5 umferðir: Tveir riðlar. Tvö efstu liðin i hvorum riðli tefla um verðlaunasæti. Hin liðin keppa um 5.-8. sæti.
  • Tímamörk: 90 mínútur + 30 sekúndna viðbót á leik.
  • Allar umferðir í Casa di Soci í Mónakó

Hversu oft hefur Ísland tekið þátt?

Ísland tekur nú þátt í þriðja skipti. Fyrst í áttunda mótinu á Írlandi árið 2023 og svo aftur í því tólfta York í Englandi árið 2025. Ísland mun haldið mótið árið 2027.

Mótið er frábært tækifæri fyrir Ísland til að gefa fleiri ungmennum tækifæri á að tefla fyrir Íslands hönd á hverju ári.

Hverjir tefla fyrir Ísland?

Ísland er sjötta sterkasta liðið á pappírnum.

Forsvarsmenn Chessmates um mótið:

“ChessMates International is about more than individual skill — it’s about teamwork,
cultural exchange, and building friendships across borders.
— Jurriaan Kien, Forseti ChessMates og hugmyndasmiður.

“Hosting this event in Monaco continues the Principality’s proud tradition of supporting
international sports events, particularly chess, while celebrating youth cooperation and
team competition.”
— Jean-Michel Rapaire, forseti skáksambands Mónakó.

- Auglýsing -