Meistaramót Norðurlands vestra í skólaskák

    0
    147
    Hvenær:
    15. apríl, 2026 @ 09:30 – 12:00
    2026-04-15T09:30:00+00:00
    2026-04-15T12:00:00+00:00
    Hvar:
    Húnaskóli
    Húnabyggð
    Ísland
    Gjald:
    Ókeypis
    Meistaramót Norðurlands vestra í skólaskák @ Húnaskóli | Húnabyggð | Ísland

    Meistaramót Norðurlands vestra í skólaskák fer fram miðvikudaginn, 15. apríl.

    Mótið hefst kl. 9:30 og teflt er í þremur einstaklingsflokkum:

    1.-4. bekkur, 5.-7. bekkur og 8.-10. bekkur.

    Tefldar verða 7 umferðir og umhugsunartími verður 5 mín + 2 sek á hverja skák.
    Mótsstjórn áskilur sér rétt til breytinga á fyrirkomulagi.

    Reiknað er með að mótshaldið taki um 2 klst.

    Mótið er opið fyrir alla grunnskólanemendur á Norðurlandi vestra

    Athugið að hámarki tveir frá hverjum skóla í hverjum flokki. 

    Skilyrði fyrir þátttöku er að keppendur hafi lært grunnatriði skákarinnar.

    Verðlaun verða veitt fyrir 3 efstu sætin í hverjum flokki.

    Sigurvegari hvers flokks fær keppnisrétt á Landsmótinu í skólaskák sem fram fer í Ólafsvík 9.-10. maí Skráningarfrestur er til kl. 16:00, þriðjudaginn, 14. apríl.

    Þegar skráðir keppendur

    - Auglýsing -