Fimmta og sjötta umferð fóru fram í á Sydney Internationl mótinu en Alþjóðlegi meistarinn Aleksandr Domalchuk-Jonasson hafði farið vel af stað og hafði 3,5 vinning eftir fjórar umferðir. Í dag tapaði Aleksandr fyrri skákinni sem minnka töluvert möguleika á stórmeistaraáfanga en okkar maður náði að vinna seinni skák dagins.
Í fyrri skákinni mætti hann indverska stórmeistaranum Guba Mitrabha (2505) og hafði svart. Hvítur fékk þægilegra tafl úr byrjuninni, merkilegt nokk voru fyrstu 12 leikirnir eins og í skák Robert Markus og Guðmundar Kjartanssonar frá árinu 2023, skemmtileg tilviljun!
Indverjinn byggði upp hættulega sóknarstöðu og Aleksandr missti tökin.
29.Hh2! Df3 30.Hxh7!! Kxh7 31.Dh2+ og svarta staðan hrynur gjörsamlega.
Seinni skákin gekk betur en hann mætti Dusan Stojic (2184) og hafði hvítt. Baráttan var ansi erfið lengast af en Sasha náði taktík í lokin í endatafl og vann mann, erfið skák en góður sigur.
Í sjöundu umferð á morgun hefur Aleksandr hvítt gegn pólska stórmeistaranum Jacek Stopa (2342).
- Skákir á lichess
- Heimasíða mótsins (úrslit, paranir, staða og dagskrá)
Sydney International Open Championships heitir mótið sem Aleksandr teflir á. Alls taka 37 skákmenn þátt og er Aleksandr númer 5 í styrkleikaröðinni en fimm stórmeistarar eru meðal þátttakenda.

















