Sjötta umferðin á Heimsmeistaramóti öldungasveita í Durres í Albaníu fór fram í dag eftir hvíldardag. Íslenka liðið í 65+ flokkunum náði góðum úrslitum, lögðu Frakka að velli og eru í efsta sæti þegar þrjár umferðir eru eftir. Lykilumferðir framundan enda mörg lið um hituna. Í 50+ flokknum lagði Ísland lið Skota að velli en Vestfirðir lutu í dúk gegn sterkri sveit Englendinga.
65+ flokkur
Þorsteinn hvíldi í dag en liðið mætti Frökkum sem voru efstir fyrir umferðina.
Helgi hafði svart og tefldi enn eina ferðina eins og herforingi með svörtu mönnunum gegn Vaisser sem er fyrrverandi heimsmeistari öldunga. Helgi yfirspilaði Vaisser í miðtafli úr Nimzo-indverskri vörn og hélt góðri stjórn á skákinni allan tímann. Vaisser gaf í gjörtöpuðu hróksendatafli.
Margeir hélt þægilegra tafli úr miðtaflinu í endataflið og þar náði hann skemmtilegu gegnumbroti sem tryggði fjarlægan frelsingja á h-línunni sem braut þolmörk svörtu stöðunnar.
Jón L. mætti öðrum af Roos bræðrunum. Jón með svörtu yfirspilaði andstæðing sinn í miðtaflinu og fékk betra tafl, mikla pressu á c3 peðið. Frakkinn náði að verjast og fann taktískar aðgerðir til að einfalda taflið í dautt hróksendatafl.
Áskell fékk betra gegn Benoni frá Roos og stóð betur í miðtaflinu. Skellurinn missti aðeins tökin í miðtaflinu og á kafla var hvíta staðan hætt komin en skömmu eftir það náði okkar maður góðri tafl-einföldun og jafnteflið tryggt.
Úrslit:
Þægilegur 3-1 sigur og ef eitthvað er hefði hann getað orðið stærri!
Íslenska liðið er í efsta sæti á oddastigum en þéttur pakki á toppnum! Jusupow og fleiri lúra þarna!

Í sjöundu umferð mætir íslenska sveitin Slóvakíu með Ftacnik á efsta borði.

50+ flokkur
Vestfirðingasveitin var ofar íslensku sveitinni í þessari umferð og fengu því erfitt verkefni, mættu Adams og ensku stórmeistarasveitinni.

Guðmundur náði ekki að fylgja eftir frábærum úrslitum gegn Agdestein og tapaði gegn Adams. Týpísk skák fyrir Adams sem heldur alltaf góðri stjórn og kæfir niður spil andstæðingsins.
Guðmundur Halldórsson var sá eini sem náði í úrslit en hann gerði jafntefli við Davies þegar hann náði að halda drottningarendatafli peði undir.


Lið Íslands í 50+ lagði Skota að velli í dag í viðureign sem stóð höllum fæti á köflum! Ágúst Sindri hvíldi í dag.

Þröstur náði fínum sigri á öðru borði:
Úrslit:

Staðan:
Bandaríkjamenn efstir en Ísland er í 7. sæti og Vestfirðir í 11. sæti. Í sjöundu umferð mætir Ísland liði Norðmanna með Agdestein í broddi fylkingar en Vestfirðir mæta England-3.
- Heimasíða mótsins
- Mótið á chess-results 50+ | 65+
- Skákir á lichess 50+ | 65+
Um mótið:
Heimsmeistaramót öldungasveita fer fram í Durres í Albaníu 19-28. apríl. Tefldar eru 9 umferðir. Ísland teflir fram þriðju stigahæstu sveitinni í flokki 65+ og fimmtu stigahæstu sveitina í flokki 50+. Sveit eingöngu skipuð Vestfirðingum í flokki 50+ er svo ellefta stigahæsta sveitin.
Sveit Íslands í 65+
GM Helgi Ólafsson – 2439
GM Margeir Pétursson – 2387
GM Jón L. Árnason – 2407
FM Þorsteinn Þorsteinsson – 2220
IM Áskell Örn Kárason – 2121
Sveit Íslands í 50+ skipa
GM Jóhann Hjartarson – 2466
GM Þröstur Þórhallsson – 2392
IM Karl Þorsteins – 2404
FM Ágúst S. Karlsson – 2224
FM Rúnar Sigurpálsson – 2236
Sveit Vestfirðinga er skipuð:
FM Guðmundur Gíslason – 2251
CM Magnús P. Örnólfsson – 2163
FM Halldór Grétar Einarsson – 2173
CM Guðmundur Halldórsson – 2105

















