TePe Sigeman-mótið hófst í dag í Malmö en mótið er að venju sterkt og vekur sésrstaka athygli í ár þar sem Magnus Carlsen er meðal þátttakenda. Mótið er átta manna round-robin (allir við alla) , alls sjö umferðir, teflt á Elite Plaza Hotel í miðborg Malmö.
Umhugsunartíminn er 90 mínútur fyrir fyrstu 40 leikina, síðan 30 mínútur til loka skákar, með 30 sekúndna viðbót frá fyrsta leik, og samkvæmt svokölluðum Malmö-reglum eru jafnteflistilboð ekki leyfð fyrir 40. leik.
Keppendahópurinn er glæsilegur: Magnus Carlsen, Nodirbek Abdusattorov, Arjun Erigaisi, Jorden van Foreest, Yağız Kaan Erdoğmuş, Nils Grandelius, Andy Woodward og Jiner Zhu. Þarna mætast reyndir stórmeistarar og nokkrir af áhugaverðustu ungu skákmönnum heims, flestir frumlegir og hvassir skákmenn.
Sérstaka athygli vekur auðvitað þátttaka Magnus Carlsen. Þegar MC sest að tafli í klassískri skák fylgist skákheimurinn grannt með, enda eru slíkt sjaldgæfara en áður og ætíð mikið tilhlökkunarefni. Carlsen hefur sjálfur verið minna virkur í klassískri skák á síðustu misserum, þannig að endurkoma hans við borðið í Malmö gefur mótinu aukið vægi.

Carlsen hafði hvítt gegn Erigaisi í fyrstu skákinni. Norðmaðurinn fékk örlitla klípu í drottningarlausu miðtafli en lítið til að tala um. Indverjinn hélt jafnteflinu nokkuð auðveldlega.
Margir bíða líka spenntir eftir að sjá hvað músin gerir, Erdogmus Tyrkinn ungi. Hann gerði nokkuð öruggt jafntefli með svörtu gegn van Foreest.
Fyrsta skákin til að klára var hjá Jiner og Abdusattorov. Úzbekar eru „á eldi“ hvar sem er í skákheiminum virðist vera. Nodirbek fékk þægilegra tafl með svörtu gegn Jiner en hún gerði málin aðeins of einföld með afleik í miðtaflinu.
Loks lagði Bandaríkjamaðurinn ungi Andy Woodward, heimamanninn Grandelius að velli. Woodward er spennandi strákur, vann B-flokkinn á Tata Steel fyrr á árinu og nafn sem vert er að fylgjast með!
Nodirbek og Woodward því efstir með 1 vinning að lokinni fyrstu umferð, taflið heldur áfram á morgun en skákir byrja 13:00 að íslenskum tíma…fín upphitun fyrir Íslandsmóts-skákir!















