Frá skákstað. Mynd: TTJ
Íslandsmótið í skák (Skákþing Íslands – landsliðsflokkur) hefst á föstudaginn 1. maí kl. 15 í Miðgarði í Garðabæ við afar góðar aðstæður á annarri hæð hússins.
Alls taka tíu keppendur þátt, þar af þrír stórmeistarar.
Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson telst langlíklegastur til sigurs, en hinir tveir stórmeistararnir, Hannes Hlífar Stefánsson (þrettánfaldur Íslandsmeistari) og Guðmundur Kjartansson (þrefaldur Íslandsmeistari), munu líklega veita honum harða keppni. Sérstaklega áhugavert er að Vignir mætir þeim báðum í síðustu tveimur umferðunum. Svo gætu aðrir auðvitað komið á óvart og blandað sér í baráttuna.
Athygli vekur einnig að tvíburabræðurnir Bárður Örn og Björn Hólm Birkisson tefla báðir í mótinu – slíkt hefur aldrei gerst áður á Íslandsmótinu, þó bræður og jafnvel feðgar og hjón hafi hafi áður teflt saman á mótinu
Keppendalisti:
  1. GM Vignir Vatnar Stefánsson (2534)
  2. GM Hannes Hlífar Stefánsson (2409)
  3. GM Guðmundur Kjartansson (2399)
  4. IM Dagur Ragnarsson (2391)
  5. IM Björn Þorfinnsson (2356)
  6. IM Hilmir Freyr Heimisson (2310)
  7. FM Örn Leó Jóhannsson (2309)
  8. FM Bárður Örn Birkisson (2278)
  9. CM Björn Hólm Birkisson (2214)
  10. WGM Lenka Ptácníková (2126)
Umferðir hefjast daglega kl. 15, nema lokaumferðin sem fram fer 9. maí sem hefst kl. 11. Komi til aukakeppni verður hún tefld strax að lokinni lokaumferð.
Í fyrstu umferð kl. 15 mætast:
  • GM Vignir Vatnar Stefánsson – FM Örn Leó Jóhannsson
  • CM Björn Hólm Birkisson – GM Hannes Hlífar Stefánsson
  • IM Dagur Ragnarsson – GM Guðmundur Kjartansson
  • FM Bárður Örn Birkisson – IM Björn Þorfinnsson
  • WGM Lenka Ptácníková – IM Hilmir Freyr Heimisson
Bæjarstjóri Garðabæjar, Almar Guðmundsson, mun setja mótið og leika fyrsta leikinn.
Skáksambandið mun bjóða upp á beinar útsendingar og samantektir í umsjón Ingvars Þór og fleiri í lok dags. Allar upplýsingar og útsendingar aðgengilegar verða á skak.is.

.

- Auglýsing -