Íslandsmótið í skák (Skákþing Íslands – landsliðsflokkur) hófst í dag, föstudaginn 1. maí kl. 15 í Miðgarði í Garðabæ við afar góðar aðstæður á annarri hæð hússins. Bæjarstjóri Garðabæjar, Almar Guðmundsson, setti mótið og lék fyrsta leikinn.
Lítið var um óvænt úrslit í fyrst umferðinni
Fyrsta umferð var tefld í dag og rennum yfir gang mála:
GM Vignir Vatnar Stefánsson – FM Örn Leó Jóhannsson

Vignir vann nokkuð öruggan sigur með hvítu gegn Erni Leó. Örn var full ákafur í að forðast alfaraleiðir með svörtu og snemma í miðtaflinu lenti svartur í vandræðum með staðsetningu manna sinna og Vignir refsaði grimmilega. Fín byrjun hjá Vigni en Örn Leó ekki öfundsverður að koma inn með stuttum fyrirvara og mæta Vigni sem er í „kjúklingabringu-ham“ þessa dagana!
CM Björn Hólm Birkisson – GM Hannes Hlífar Stefánsson

Hannes reyndist sleipari á svellinu í miðtaflinu. Líklegast var veiking e4-reitsins og taflmennskan í framhaldinu of erfið fyrir hvítan. Hannes nýtur sín vel í svona stöðum og sýndi sína styrkleika.
IM Dagur Ragnarsson – GM Guðmundur Kjartansson

Dagur virtist nokkuð vel undirbúinn og fékk þægilegt tafl gegn Ragozin-vörn Guðmundar. Í miðtaflinu fann Guðmundur mikilvæga leið til að jafna taflið með gervi-mannsfórn á d3 reitnum sem vann peð til baka. Endataflið virtist svo aldrei bjóða upp á möguleika á neinn.
FM Bárður Örn Birkisson – IM Björn Þorfinnsson

Björn beitti Albins-mótbragði með svörtu en þvert á hans vonir um að herja á krónísk tímahraksvandræði hjá Bárði lentu þeir báðir í tímahraki og Báður ekki í neinum vandræðum í byrjuninni. Eftir Dh5 hjá Bárði var svarta staðan strax orðin erfið og Bárður tefldi framhaldi býsna vel og innbyrði góðan sigur.
WGM Lenka Ptácníková – IM Hilmir Freyr Heimisson

Lenka fór á peðaveiðar gegn Hilmi með mjög beinskeyttri taflmennsku. Hvítur vinnur peð en svartur fær sóknarfæri og betri liðsskipan. Almennt séð er Hilmir stórhættulegur í slíkum stöðum og hann sýndi af hverju í dag. Öruggur sigur hjá Hilmi sem er í góðum gír, hefur unnið 6 kappskákir á innan við viku eftir fullt hús á Boðsmóti TR síðustu helgi.
Stigahæstu mennirnir Vignir Vatnar og Hannes Stefánssynir unnu góða sigra gegn stigalægri andstæðingum og sama má segja um Hilmi Frey gegn Lenku Ptacnikovu. Óvænt úrslit hjá Bárði Erni Birkissyni gegn Birni Þorfinnssyni þó ekki sé langt á milli þeirra í styrkleika. Dagur Ragnarsson og Guðmundur Kjartansson sættust á skiptan hlut í baráttuskák þar sem Dagur setti nokkra pressu á Guðmund en þeir er báðir með stigahæstu mönnum á mótinu.
Samantekt frá fyrsta keppnisdegi í umsjón FM Ingvars Þórs:
Tefldar verða níu umferðir, þar sem teflt er daglega kl. 15, nema í lokaumferðinni 9. maí sem hefst kl. 11. Komi til aukakeppni verður hún tefld strax að lokinni lokaumferð.
- Mótið á Chess-Results
- Beinar útsendingar á Lichess
Um mótið:
Alls taka tíu keppendur þátt, þar af þrír stórmeistarar. Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson telst líklegastur til sigurs, en hinir tveir stórmeistararnir, Hannes Hlífar Stefánsson (þrettánfaldur Íslandsmeistari) og Guðmundur Kjartansson (þrefaldur Íslandsmeistari), eru taldir veita honum harða keppni. Athyglisvert er að Vignir mætir þeim báðum í síðustu tveimur umferðunum. Þá gætu aðrir keppendur einnig komið á óvart og blandað sér í toppbaráttuna.
Einnig vekur athygli að tvíburabræðurnir Bárður Örn og Björn Hólm Birkisson tefla báðir í mótinu – slíkt hefur ekki gerst áður á Íslandsmótinu, þó bræður og jafnvel feðgar og hjón hafi áður teflt saman.
Tefldar verða níu umferðir, þar sem teflt er daglega kl. 15, nema í lokaumferðinni 9. maí sem hefst kl. 11. Komi til aukakeppni verður hún tefld strax að lokinni lokaumferð.















