Önnur umferð Íslandsmótið í skák hefst kl. 15 í dag í Miðgarði. Þá mætast:

  • GM Hannes (1) – FM Báður Örn (1)
  • GM Vignir Vatnar (1) – IM Dagur (½)
  • FM Örn Leó (0) – IM Hilmir Örn (1)
  • GM Guðmundur (½) – CM Björn Hólm (0)
  • IM Björn Þ. (0) – WGM Lenka (0)

Samantekt frá fyrsta keppnisdegi í umsjón FM Ingvars Þórs:

Tefldar verða níu umferðir, þar sem teflt er daglega kl. 15, dagana 1.-9. maí, nema í lokaumferðinni 9. maí sem hefst kl. 11. Komi til aukakeppni verður hún tefld strax að lokinni lokaumferð.

Um mótið:

Alls taka tíu keppendur þátt, þar af þrír stórmeistarar. Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson telst líklegastur til sigurs, en hinir tveir stórmeistararnir, Hannes Hlífar Stefánsson (þrettánfaldur Íslandsmeistari) og Guðmundur Kjartansson (þrefaldur Íslandsmeistari), eru taldir veita honum harða keppni. Athyglisvert er að Vignir mætir þeim báðum í síðustu tveimur umferðunum. Þá gætu aðrir keppendur einnig komið á óvart og blandað sér í toppbaráttuna.

Einnig vekur athygli að tvíburabræðurnir Bárður Örn og Björn Hólm Birkisson tefla báðir í mótinu – slíkt hefur ekki gerst áður á Íslandsmótinu, þó bræður og jafnvel feðgar og hjón hafi áður teflt saman.

Tefldar verða níu umferðir, þar sem teflt er daglega kl. 15, nema í lokaumferðinni 9. maí sem hefst kl. 11. Komi til aukakeppni verður hún tefld strax að lokinni lokaumferð.

 

- Auglýsing -