Barnaskákmót KR fór fram 25. apríl. Mótið fór fram með hefðbundnu sniði. Boðið var
upp á veitingar frá klukkan 12 og mótin hófust klukkan 13:00. Teflt var í tveimur
flokkum, annars vegar í flokki krakka í 1.-3. bekk og hinsvegar í flokki krakka í 4.-9.
Bekk. Samtals tóku 82 krakkar þátt í mótunum, sem er metþátttaka.

Í yngri flokki mættu 36 krakkar til leiks. Þeir sem áður höfðu unnið yngri flokkinn
bauðst að keppa með eldri flokknum. Þetta nýttu Róbert Heiðar Skúlason og Helgi
Fannar Óðinsson sér. Þeir eru þeir einu sem hafa unnið yngri flokkinn í vetur og því
var ljóst að nýr sigurvegari ynni yngra flokkinn.

Enginn keppandi komst taplaus í gegnum yngri flokkinn. Það er ljóst að margir
krakkar eru mikilli framför og töluvert var um óvænt úrslit, sé litið til úrslita fyrri móta.
Að lokum fór það svo að Sævar Svan Valdimarsson vann mótið en í öðru sætu varð
Aksharan Ananthakrishnan og í þriðja sæti varð Charlie Bull. Enginn af þeim hefur
áður lent í verðlaunasæti á barnamótum KR, þó bæði Sævar og Aksharan hafi verið
nálægt því áður.
Í eldri flokki kepptu 46 krakkar og 24 af þeim voru með alþjóðleg atskákstig. Í fyrsta
barnaskákmóti KR sem haldið var í mars 2025 mættu 22 krakkar og 5 af þeim voru
með alþjóðleg atskákstig.

Rétt eins og í yngri flokknum náði enginn í eldri flokknum að vinna allar skákirnar og
margar skákir voru mjög spennandi. Í fyrsta sæti varð Tristan Fannar Jónsson, Í
öðru sæti Anh Hai Tran og í þriðja sæti Emil Finnsson Fenger. Þetta var í þriðja sinn
sem Tristan vinnur barnaskákmót KR. Anh Hai og Emil hafa verið í verðlaunasætum
áður.
Skákdeild KR þakkar keppendum fyrir góða hegðun, bæði við skákborðið og á milli
umferða. Jafnfram þökkum við sjálfboðaliðum fyrir góð störf.


















