TePe Sigeman-mótið hélt áfram í dag í Malmö en 2. umferð mótsins var tefld í dag. Stigahæsti skákmaður heims (og allra tíma) Magnus Carlsen lagði heimamanninn Nils Grandelius að velli með svörtu í Benoni vörn! Öðrum skákum lauk með jafntefli og Carlsen því efstur ásamt Nodirbek og Woodward með 1,5 af 2.
Magnus hafði svart gegn Nils Grandelius og valdi að beita Benoni-vörn, byrjun sem er sjaldgæf á hæsta stigi skákarinnar. Byrjuninni er einna helst beitt þegar svartur þarf nauðsynlega að vinna en áhættan yfirleitt talin of mikil af bestu skákmönnum heims.

Carlsen tefldi skemmtilega, fórnaði peði í miðtaflinu en vann það nokkuð fljótt til baka með góða pressu úr stöðu sem þar sem flæðið var gott fyrir svart. Á endanum var Carlsen betri í taktíkinni, hann átti hættuleg frípeð á c- og a-línunni og forðaðist mótspil hvíts með taktískum aðgerðum. Til dæmis hér:
28.Bh6 er freistandi en þá var Carlsen væntanlega tilbúinn með 28…Dxd5 29.Bxh6 Dd4+ 30.Kh1 Dg4! og endataflið er unnið á svart. Skákin á d4 í raun lykill í mörgum stöðu, líka í blálokin:
Hér strandar 34.Bxf8 á einmitt 34…Dd4+ og svartur mátar í örfáum leikjum, samspil drottningar og biskups of sterkt og a-peðið einum reitt frá uppvakningu bætir gráu ofan á svart!
Þeir Nodirbek Abdusattorov og Andy Woodward byrjuðu báðir sterkt með sigri í fyrstu umferð. Þeir mættust í dag og hafði Nodirbek hvítt. Úzbekinn tefldi af krafti og náði góðum sóknarfærum á kóngsvæng og fékk unnið tafl en víxlaði líklega leikjum.
Hér lék Nodirbek 53.Rf3? en 53.Kh2! fyrst vinnur. Munurinn liggur í að í lykillínum á svartur ekki De3+ og Dxh6. Skákin endaði þess í stað með jafntefli, góð vörn hjá Woodward í erfiðri stöðu lengi vel.
Skákum Erdogmus-Erigaisi og Forrest-Jiner lauk líka með jafntefli.
Carlsen, Nodirbek og Woodward því efstir með 1,5 vinning að loknum tveimur umferðum, taflið heldur áfram á morgun en skákir byrja 13:00 að íslenskum tíma…fín upphitun fyrir Íslandsmóts-skákir!
Um mótið:
Tepe Sigeman er sterkt mót sem haldið er í Svíþjóð og hefur vakið athygli fyrir skemmtilegan keppendalista í gegnum tíðina. Sérstaka athygli vakti þátttaka Magnus Carlsen í ár. Óstaðfestar heimildir herma að Carlsen hafi tekið þátt þar sem golfvellir í nánd við mótsstað eru með besta móti!
Umhugsunartíminn er 90 mínútur fyrir fyrstu 40 leikina, síðan 30 mínútur til loka skákar, með 30 sekúndna viðbót frá fyrsta leik, og samkvæmt svokölluðum Malmö-reglum eru jafnteflistilboð ekki leyfð fyrir 40. leik.
Keppendahópurinn er glæsilegur: Magnus Carlsen, Nodirbek Abdusattorov, Arjun Erigaisi, Jorden van Foreest, Yağız Kaan Erdoğmuş, Nils Grandelius, Andy Woodward og Jiner Zhu. Þarna mætast reyndir stórmeistarar og nokkrir af áhugaverðustu ungu skákmönnum heims, flestir frumlegir og hvassir skákmenn.

















