Önnur umferð Íslandsmótsins í skák var tefldi í dag í Miðgarði í Garðabæ. Vignir Vatnar Stefánsson og Dagur Ragnarsson skildu jafnir í skák tveggja af stigahæstu mönnum mótsins. Þeir Hannes Hlífar Stefánsson og Hilmir Freyr Heimisson nýttu sér það og unnu sínar skákir og hafa 2 vinninga af 2 og deila efsta sætinu.

Rennum yfir gang mála í þessari umferð:

GM Vignir Vatnar (1) – IM Dagur (½)

Teflt var drottningarbragð og Vignir kom snemma á óvart með 5.h3!?

Hér er á ferð ákveðinn biðleikur. Ding Liren beitti þessu gegn Nepo í heimsmeistaraeinvígi á sínum tíma en Ding lék reyndar 4.h3 þ.e. án 4.Rc3 Be7.

Dagur leikur svo nýjum leik 9…Bf5 en áður höfðu örfáar skákir boðið upp á 9…c6. Ný staða en þó ekki ný stöðutýpa. Vignir ákvað hér að taka slaginn með 10.g4 og strax ákveðið ójafnvægi komið í stöðuna.

Báðir könnuðust þeir við stöðuna en báðir misstu hér þráðinn, annar ruglaði saman stöðum og hinn mundi ekki undirbúninginn. Upp kom staða nokkurn veginn í jafnvægi en flæðið á stöðunni var við það að verða svörtum í hag, leikir hans auðveldari. Dagur var líka með næstu leikjum að yfirspila Vigni eilítið.

Hér er svartur komin með fína yfirburði og 30…f6! valdar g5 peðið og svartur getur tekið á f5 næst. Hvítur yrði að fórna skiptamun eins og í skákinni en við verri aðstæður en eftir 30…Kh6 sem Dagur lék.

Eftir skiptamunsfórnina er Dagur líklega með betra ef hann opnar taflið strax með kröftugum leikjum, tölvan vill leika …c5 strax og opna stöðuna. Þess í stað kom strax upp jafnt hróksendatafl og jafntefli samið. Fín úrslit fyrir Dag sem er búinn með tvo af þremur stigahæstu keppendunum og er sjálfur númer fjögur.

GM Hannes (1) – FM Bárður Örn (1)

Skákin byrjaði sem einhverskonar drottningarbragð en var snemma orðið mjög „Nimza-legt“ þ.e. eins og Dc2 afbrigðið gegn Nimza en þar leikur svartur yfirleitt ekki …Rd7. Þetta hafði nokkur áhrif því Bárður tefldi framhaldið nokkurn veginn eins og svartur teflir í Nimzanum án …Rd7. Sá riddari á yfirleitt heima á c6 eða a6 eftir atvikum. Bárður fórnaði peði en náði aldrei í nægjanlegar bætur fyrir það.

Sigurinn tók tíma hjá Hannesi en var aldrei í hættu, umframpeðið tali einfaldlega eftir smá tiltekt í stöðunni (raðtækni eins og sumir kalla það!). Fínn sigur hjá Hannesi sem er þá efstur…líklega sá skákmaður í Íslandsögunni sem hefur oftast verið efstur á Íslandsmótinu í skák!

 

FM Örn Leó (0) – IM Hilmir Örn (1)

Örn Leó tefldi Colle-uppstillingu gegn Hilmi. Róleg uppstilling og baráttan fer yfirleitt fram í miðtaflinu. Hilmir ákvað að taka strategíska áhættu með f-peðs framrás sinni til að skapa ójafnvægi í stöðunni. Tókst það og fór í hönd æsispennandi tímahrak með flóknu miðtafli.

Eftir 22.f3 (stöðumynd að ofan) kom Hilmir með skemmtilegan leik 22…Rc6! sem gefur svörtum betra tafl eftir 23.fxe4? (ekki best!) Rxe5 24.exf5 og hér var best að taka á d3. Flækjurnar héldu áfram en skákin réðist á því að Örn Leó féll á tíma þegar staðan var enn óljós og tvísýn. Spjótin stóðu þó að hvítu stöðunni sem skýrði það að Örn Leó fann ekki leik tímanlega.

Mikilvægur sigur hjá Hilmi með svörtu gegn traustum andstæðingi. Hilmir hefur nú unnið heilar átta kappskákir í röð og á góðri siglingu!

 

GM Guðmundur (½) – CM Björn Hólm (0)

Guðmundur tefldi 4.f3 afbrigðið gegn Nimzanum, kennt aðallega við Kmoch en einn helsti sérfræðingurinn í þessu afbrigði í gegnum tíðina verið stórmeistarainn Volkov. Þetta afbrigði náði smá vinsældabylgju fyrir rétt rúmum áratug þegar Mamedyarov og fleiri beittu því óspart en hefur sést minna undanfarin ár. Einnig rétt að minna á eftirminnilega skák Anand gegn Carlsen í einvíginu 2013.

Gummi hefur beitt þessu afbrigði þrisvar sinnum skv. gagnagrunnum en aldrei fengið á sig 5…b5 sem Björn lék.

Í hönd fór þungt en dýnamískt miðtafl með miklum tilfæringum. Staðan var algjörlega í jafnvægi en þá kom strategískt slakur leikur hjá svörtum.

20…b4? endaði á að skilja svartreitabiskup svarts utangátta nánast það sem eftir var skákar og Guðmundur svo að segja vann skákina á kóngsvæng, liði yfir!

 

IM Björn Þ. (0) – WGM Lenka (0)

Björn beitti Grand Prix árásinni gegn Lenku. Björn hefur brugðið því fyrir sig í órfá skipti en aldrei fengið á sig 2…e6 sem Lenka lék og hefur teflt alveg sjö sinnum. Staðan eftir 5.Rxe4 hefur Lenka fengið upp tvisvar og lék þá í bæði skiptin 5…Rc6 en valdi núna 5…Rf6.

Lenka var traustari í miðtaflinu, kóngssókn Björns líklega vafasöm en Lenka gerði eiginlega sömu mistök og í gær, fór á peðaveiðar og hugði ekki að kóngsstöðunni. 19…0-0 eða 20…Bxg3 21.Dxg3 0-0 hefði gefið svörtum betra tafl en þess í stað náði Björn að opna taflið með kónginn fastan á miðborðinu.

Hilmir og Hannes því efstir eftir þessa umferð með 2 vinninga, Vignir hefur 1,5 vinning ásamt Guðmundi. Dagur, Bárður og Björn Þorfinns hafa 1 vinning, aðrir eru ekki komnir á blað.

Á morgun klukkan 15:00 fer fram þriðja umferð. Þá mætast:

IM Dagur Ragnarsson hefur hvítt á FM Örn Leó Jóhannsson,
CM Björn Holm Birkisson hvítt gegn GM Vigni Vatnari Stefánssyni,
FM Bárður Örn Birkisson mun kljást við GM Guðmund Kjartansson,
WGM Lenka Ptáčníková og GM Hannes Stefánsson mætast og teflir IM Hilmir Freyr Heimisson við IM Björn Þorfinnsson.

Samantekt frá öðrum keppnisdegi í umsjón FM Ingvars Þórs:

Myndaalbúm á Flickr (notið örvar til að fletta myndum!)

Íslandsmótið í skák 2026

Um mótið:

Alls taka tíu keppendur þátt, þar af þrír stórmeistarar. Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson telst líklegastur til sigurs, en hinir tveir stórmeistararnir, Hannes Hlífar Stefánsson (þrettánfaldur Íslandsmeistari) og Guðmundur Kjartansson (þrefaldur Íslandsmeistari), eru taldir veita honum harða keppni. Athyglisvert er að Vignir mætir þeim báðum í síðustu tveimur umferðunum. Þá gætu aðrir keppendur einnig komið á óvart og blandað sér í toppbaráttuna.

Einnig vekur athygli að tvíburabræðurnir Bárður Örn og Björn Hólm Birkisson tefla báðir í mótinu – slíkt hefur ekki gerst áður á Íslandsmótinu, þó bræður og jafnvel feðgar og hjón hafi áður teflt saman.

Tefldar verða níu umferðir, þar sem teflt er daglega kl. 15, nema í lokaumferðinni 9. maí sem hefst kl. 11. Komi til aukakeppni verður hún tefld strax að lokinni lokaumferð.

 

- Auglýsing -