Vormót Skákskóla Íslands fór fram dagana 23.-24. maí í húsnæði skólans í Faxafeni.
Tefldar voru níu umferðir með tímamörkunum 15+5.

Þátttaka á mótinu var með besta móti en 34 keppendur voru skráðir til leiks, þar af nokkrir af landsbyggðinni.

Keppnin var gríðarlega hörð og spennan mikil í lokaumferðunum.
Birkir Hallmundarson stóð að lokum uppi sem sigurvegari á mótinu, fékk átta vinninga í skákunum níu. Haukur Víðis Leósson og Markús Orri Óskarsson voru næstir með sjö vinninga. Haukur ofar á stigaútreikningi.

Frá hægri: Markús Orri (3. sæti), Birkir (1. sæti), Haukur (2. sæti), Björn Ívar skólastjóri Skákskólans
  1. Birkir Hallmundarson 8 v. (50.000 kr. ferðastyrkur)
  2. Haukur Víðis Leósson 7 v. (30.000 kr. ferðastyrkur)
  3. Markús Orri Óskarsson 7 v. (20.000 kr. ferðastyrkur)

Aukaverðlaun fyrir bestan árangur í æfingaflokkum (námsefni af Chessable eða vignirvatnar.is):

Stúlknaflokkur: Emilía Embla B. Berglindardóttir 5 v.
Framhaldsflokkur 1: Jónatan Leó Daðason 6 v.
Framhaldsflokkur 2: Pétur Úlfar Ernisson 5,5 v.

Aukaverðlaun fyrir góðan árangur miðað við eigin skákstig (námsefni af Chessable eða vignirvatnar.is):

Ingi Hrafn Ýmisson (1528) 5,5 v. (Árangur upp á 1816 stig)
Robin Peter Erlendsson Weinert (1433) 4,5 v. (Árangur upp á 1661 stig)

Frá hægri: Robin Peter Erlendsson Weinert, Ingi Hrafn Ýmisson, Pétur Úlfar Ernisson og Jónatan Leó Daðason

Myndir mótsins tók Tómas Tandri Jóhannsson og fær hann bestu þakkir fyrir það. Hægt er að fletta í gegnum myndirnar hér að neðan:

_D0A0818

Skákir efstu borða voru í beinni útsendingu og má nálgast neðst í fréttinni.

Skákstjóri á mótinu var Björn Ívar Karlssons skólastjóri Skákskólans.

Bein útsending

Lokastaðan á chess-results

Myndir (Tómas Tandri)

- Auglýsing -