Að lokinni næstsíðustu umferð í Áskorendaflokki Skákþings Íslands eru fjórir skákmenn jafnir og efstir fyrir lokaumferðina og mætast í þokkabót innbyrðis í lokaumferðinni! Tvíburarnir Bárður Örn Birkisson og Björn Hólm Birkisson skildu jafnir í innbyrðis skák og það gaf þeim Óskari Víking Davíðssyni og Gauta Páli Jónssyni færi á að ná þeim að vinningum en þeir unnu sínar viðureignir.
Bárður og Björn skildu jafnir. Skákin tefld og tíminn fullnýttur en hvorug staðan gaf tilefni til taps og jafnteflið rökrétt úrslit. Báðir eiga þeir því enn séns á Landsliðsflokkssæti en þurfa líklegast báðir að vinna í lokaumferðinni.
Óskar Víkingur nýtti færið og lagði Pétur Úlfar að velli. Óskar tefldi mjög sannfærandi Maroczy uppstillingu með hvítu og þjarmaði hratt og vel að TR-ingnum unga sem missti skiptamun og vörnin orðin óyfirstíganleg.
Gauti hafði hvítt gegn hinum unga Markúsi Orra Óskarssyni. Markús beitti franskri vörn og Gauti aðlagaði sig aðeins eftir að hafa gengið illa gegn þeirri byrjun áður í mótinu. Gauti fór í „Rock Solid“ gírinn og byggði upp trausta stöðu og gerði liðsskipan svarts erfiða og þjarmaði svo að veikleikum í svörtu stöðunni. Gauti sýndi svo þolinmæði og treysti á umframpeðin sín í stað þess að þenja sig of mikið í mátsókn.
Helstu úrslit 8. umferðar
FM Bárður Örn Birkisson – CM Björn Hólm Birkisson ½–½
Óskar Víkingur Davíðsson – Pétur Úlfar Ernisson 1–0
Gauti Páll Jónsson – Markús Orri Óskarsson 1–0
Josef Ómarsson – CM Adam Ómarsson ½–½
Mikael Jóhann Karlsson – FM Sigurbjörn Björnsson 0–1
Markús Orri Jóhannsson – Þorsteinn Jakob F. Þorsteinsson 1–0
Lykilsigrar hjá Óskari og Gauta. Aðrir keppendur en efstu fjórir orðnir of langt á eftir til að eiga möguleika á toppsætum.
Staða efstu manna eftir 8 umferðir
Gauti Páll Jónsson – 6 vinningar
Óskar Víkingur Davíðsson – 6 vinningar
CM Björn Hólm Birkisson – 6 vinningar
FM Bárður Örn Birkisson – 6 vinningar
Sigurbjörn Hermannsson – 5 vinningar
Pétur Úlfar Ernisson – 5 vinningar
CM Adam Ómarsson – 5 vinningar
Haukur Víðis Leósson – 5 vinningar
FM Sigurbjörn Björnsson – 5 vinningar
Markús Orri Jóhannsson – 5 vinningar
Markús Orri Óskarsson – 4,5 vinningar
Að loknum átta umferðum er orðið ljóst að fjórir skákmenn berjast um tvö laus sæti í landsliðsflokki! Gauti Páll og Óskar Víkingur eru með bestu oddastigin en allt getur gerst í lokaumferðinni til að breyta því!
Helstu viðureignir 9. umferðar
Óskar Víkingur Davíðsson – FM Bárður Örn Birkisson
CM Björn Hólm Birkisson – Gauti Páll Jónsson
FM Sigurbjörn Björnsson – Pétur Úlfar Ernisson
CM Adam Ómarsson – Sigurbjörn Hermannsson
Haukur Víðis Leósson – Josef Ómarsson
Stefán Steingrímur Bergsson – WCM Guðrún Fanney Briem
Innbyrðis viðureignir, Óskar gegn Bárði og Björn Hólm gegn Gauta!
- Mótið á Chess-Results
- Beinar útsendingar (15 mínútna seinkun)
Alls taka 34 skákmenn í mótinu og eru 6 skákir sýndar beint í hverri umferð. Stighæstir keppenda eru FIDE-meistararnir Sigurbjörn Björnsson og Bárður Örn Birkisson.



















