Önnur umferð var tefld í dag á HM ungmenna en mótið fer fram á Montesilvano á Ítalíu. Landsliðskonan Guðrún Fanney Briem (2026) vann sína skák í stúlknaflokki U16 en Birkir Hallmundarson (2007) missti grátlega niður vinningsstöðu í tímahraki í sinni skák í opnum flokki U14.

Andstæðingur Guðrúnar var stigalaus stelpa frá N-Makedóníu. Sú fékk skottu í fyrstu umferð og því var farið eilítið blint í sjóinn varðandi styrkleika andstæðingsins. Snemma eftir byrjunina komu þó frekar ráðvilltir og passífir leikir og Guðrún var fljót að hrifsa frumkvæðið með svörtu í caro-kann vörninni. Niðurstaðan, mát í 26 leikjum!
Guðrún Fanney hefur nú 2 vinninga af 2 mögulegum. Í þriðju umferð hefur Guðrún hvítt gegn WFM Uliana Dudkina (2168)
Guðrún er númer 28 í stigaröð af 106 keppendum.

Birkir hafði hvítt gegn finnskum strák Radmir Vorobyov (2169). Upp komu skemmtilegar flækjur en sá finnski missti af einhverju í miðtaflinu og Birkir fékk kolunnið tafl, tölvurnar fóru mest í +11,4 en á ögurstundu í tímahraki lék Birkir af sér og svartur komst inn í skákina og hafði að lokum betur, virkilega svekkjandi tap eftir fína skák.
Birkir hefur 1 vinning af 2 og mætir Barsbek Kazakov (1701) frá Kyrgyztan í næstu umferð.
Birkir er númer 68 í styrkleikaröðinni af 151 keppanda í U14 flokknum.
Svipmyndir úr skáksal:
- Heimasíða mótsins
- Instagram síða World Youth
- Skákir á lichess: G16 | U14
- Chess-results: G16 | U14















