Fjórða umferð var tefld í dag á HM ungmenna en mótið fer fram á Montesilvano á Ítalíu. Landsliðskonan Guðrún Fanney Briem (2026) vann sína skák í stúlknaflokki U16 en Birkir Hallmundarson (2007) tapaði erfiðri en lærdómsríkri skák þar sem jafnteflisbjörgun virtist vera að raungerast í lokin en gekk ekki upp í þetta skiptið.

Guðrún hafði svart og mætti indverskri3 mögulegum og mætir indverskri stelpu Myra Singh (1808) en Indverjarnir eru jafnan erfiðir andstæðingar. Kom það og enda snemma í ljós að sú indverska var sterkari en stigin gefa til kynna. Hún tefldi af krafti gegn Caro-kann vörn Guðrúnar og fékk sterka stöðu.
Í miðtaflinu átti sú indverska mjög kröftuga leið en missti af henni. Guðrún náði að ná tökum á stöðunni og tók yfirhöndina. Tveir hrókar Guðrúnar sterkari en drottning Myru og tæknilegi hluti úrvinnslunnar í fínu lagi hjá Guðrúnu sem náði í góðan sigur.
Guðrún hefur 3 vinninga af 4 og mætir næst WCM Anja Beber (2093) frá Slóveníu.
Guðrún er númer 28 í stigaröð af 106 keppendum.

Birkir hafði hvítt í sinni skák gegn írskum skákmanni, Arun Nitish (2177) í næstu umferð en sá hefur teflt nokkrum sinnum á Reykjavik Open og á ChessMates.
Upp kom afbrigði sem hefur verið nokkuð vinsælt undanfarið og þvældu þeir báðir teoríu í hátt í 20 leiki! Áhugavert miðtafl þar sem sá írski náði að lokum yfirhöndinni. Birkir barðist vel og áttu nokkrar skemmtilegar leiðir til að halda tveimur samstæðum peðum í skefjum í endataflinu. Birkir fann ekki vörnina og varð að lúta í dúk.
Eftir tapið hefur Birkir 2 vinninga af 4 mögulegum og mætir Mason Tay (1749) frá Ástralíu með svart.
Birkir er númer 68 í styrkleikaröðinni af 151 keppanda í U14 flokknum.
Svipmyndir úr skáksal:
- Heimasíða mótsins
- Instagram síða World Youth
- Skákir á lichess: G16 | U14
- Chess-results: G16 | U14















