Sjöunda umferð var tefld á mánudeginum á HM ungmenna eftir frídag en mótið fer fram á Montesilvano á Ítalíu. Úrslitin voru svekkjandi en bæði Guðrún Fanney Briem (2026) í stúlknaflokki U16 og Birkir Hallmundarson (2007) í opna U14 gerðu jafntefli í sínum skákum eftir að hafa bæði haft vænlegt tafl, jafnvel unnið á köflum!

Guðrún hafði hvítt og mætti B P Chanthuli Thanishka DE SILVA (1851) frá Sri Lanka. Farið var í vopnabúr VignirVatnar.is og heppnaðist það nokkuð vel. Skákin fylgdi skákinni Vignir – Mohinasab framan af og hefði Guðrún valið langhrókun stendur hvítur mun betur. Guðrún hrókaði stutt og misst mest af frumkvæði sínu en stóð þó aðeins betur.
Framhaldið tefldi Guðrún vel og fékk aftur sénsa í endataflinu en tók þá ekki og því fór sem fór, andstæðingur hennar vann fyrir þessu jafntefli…svo einfalt er það!
Guðrún hefur 3,5 vinning af 7 og mætir næst Joy Zhang (1765) frá Bandaríkjunum.
Guðrún er númer 28 í stigaröð af 106 keppendum.

Birkir hafði svart og mætti strák frá Malasíu með langt nafn, Kai Xue Edric Ch Ng (1655). Eftir mistök hvíts snemma í miðtaflinu fann Birkir skemmtilega taktík!
17…Rxe5! var ansi nettur hér! Svartur vann manninn til baka og fékk tvö peð í kaupbæti, stóð til vinnings! Því miður „redúseraði Birki ansi primitíft“ eins og menn hefðu sagt í gamla daga. Skipt var upp á of mikið af liði og hvítur náði að kreysta fram jafntefli í mislitu biskupaendatafli.
Birkir hefur 3,5 vinning af 7 og mætir næst Daniel Stefanovski (1860) frá N-Makedóníu.
Birkir er númer 68 í styrkleikaröðinni af 151 keppanda í U14 flokknum.
Svipmyndir úr skáksal:
- Heimasíða mótsins
- Instagram síða World Youth
- Skákir á lichess: G16 | U14
- Chess-results: G16 | U14
















