Stórmeistarinn Guðmundur Kjartansson og alþjóðlegi meistarinn Björn Þorfinnsson tefldu í dag tvöfalda umferð á alþjóðlegu móti á Korsíku, Porticcio Open. Tefldar voru 2. og 3. umferð. Speglaðist árangur þeirra félaga áfram, unnu þeir báðir lakari andstæðing í fyrri umferðinni en töpuðu svo báðir á mörkum jafnteflis og lék nánast af sér á sama augnabliki, teflandi hlið við hlið.

Guðmundur mætti heimamanni í 2. umferðinni og hafði hvítt. Guðmundur yfirspilaði andstæðing sinn fljótt í miðtaflinu, fékk hættuleg færi og vann í 31 leik, gaman að sjá kraftinn í fyrstu tveimur skákum Guðmundar.
Í þriðju umferðinni var Guðmundur búinn að verjast feykivel gegn stórmeistaranum Zbigniew Pakleza með svörtu mönnunum. Í 70. leik kom yfirsjón.
70…Kd8?? og hvítur er með unnið eftir 71.d7! Í staðinn hefði 70…Df3 haldið jöfnu tafli áfram.

Björn hafði hvítt í fyrri skákinni og vann mjög auðveldlega gegn einstaklega hæfileikalitlum sóknartilburðum andstæðings hans á kóngsvængnum.
Í seinni skákinni var Björn hársbreidd frá því að ná jafntefli en fann ekki réttu leiðina í jöfnu hróksendatafli. Litlu mátti muna að hann kæmist þrátt fyrir allt í jafnteflislegt Hrókur + h- og f- peð gegn Hrók en útgáfan sem Björn lenti í var töpuð. Merkilegt nokk var seinni andstæðingur dagsins pólskur eins og andstæðingur Guðmundar…þó alþjóðlegur meistari, ekki stórmeistari.
Á morgun er fjórða umferð tefld. Guðmundur hefur þá hvítt gegn SHAHMAMMADLI Safkhan og Björn hvítt gegn DELADERRIERE Apollo, báðir um 2100 stiga skákmenn.
Alls taka rúmlega 50 skákmenn þátt í efsta flokknum sem Guðmundur og Björn eru skráðir til leiks í. Guðmundur er númer 9 í stigaröðinni en Björn númer 11.
















