Sigurvegarar á Sumarmóti Vinaskákfélagsins 2025

Hið árlega sumarskákmót Vinaskákfélagsins verður haldið mánudaginn 6 júlí 2026, kl: 13, í Vin að Hverfisgötu 47. Teflt verður úti og inni, en ef það rignir, þá frestast skákmótið til mánudagsins 13 júlí.

Mótið heitir „Sumarskákmót Vinaskákfélagsins 2026“.

Undirtitill: „Meistaramót Vinaskákfélagsins í hraðskák 2026“.

Tefldar verða 6 umferðir með 4 mín. + 2 sek., á skák.

Ef tveir verða efstir og jafnir, þá keppa þeir til úrslita um sigurinn í „bráðabana“, þar sem hvítur hefur 5 mínútur og svartur 4 mínútur og nægir svörtum jafntefli til að vinna.

Einnig er keppt um það hver verður Hraðskákmeistari Vinaskákfélagsins 2026.

Margir sterkir skákmenn hafa tekið þátt í þessu móti.

Skákdómari er Róbert Lagerman og mótstjóri er Hörður Jónasson.

Mótið verður reiknað til hraðskákstiga.

Þátttökugjald er 1.500 kr. Frítt fyrir unglinga U-16. Frítt fyrir félaga í Vinaskákfélaginu.

Í hléi verður boðið upp á kaffi og vöfflur.

Aðalverðlaun:

  1. Sæti. Gull verðlaunapeningur + 15.000 kr.
  2. Sæti. Silfur verðlaunapeningur + 10.000 kr.
  3. Sæti. Brons verðlaunapeningur + 5.000 kr.

Verðlaun félaga í Vinaskákfélaginu:

  1. Sæti. Áritun á Farandbikar + gull verðlaunapeningur + skákbók.
  2. Sæti. Silfur verðlaunapeningur + skákbók.
  3. Sæti. Brons verðlaunapeningur + skákbók.

Skráningarform er inn á heimasíðu félagsins: Sumarskákmót Vinaskákfélagsins 2026

Þegar skráðir skákmenn: Sumarskákmót Vinaskákfélagsins 2026

Allir velkomnir!!

- Auglýsing -