FIDE birti í dag ný alþjóðleg skákstig. Emil Finnson Fenger hækkaði mest í annars nokkuð erfiðum mánuði hjá stigahærri skákmönnum.
Skákmenn og skákkonur
Vignir Vatnar Stefánsson (2540) er stigahæstur íslenskra skákmanna en litlar breytingar urðu á topp 20 listanum. Lenka Ptácníková (2063) er stigahæst skákkvenna þrátt fyrir nokkuð þungan mánuð.
Ungir og gamlir
Benedikt Briem (2239) er stigahæstur ungra skákmanna. Hann jók forskot sitt umtalsvert í mánuðinum þar sem næstu menn áttu erfiðan mánuð.
Héðinn Steingrímsson (2502) er stigahæstur á vizkualdrinum.
Breytingar
Emil Finnson Fenger (1658) sigraði í bikarsyrpu í mánuðinum og hækkaði um 109 stig á meðan Pétur Úlfar Ernisson (1913) var sterkur í áskorendaflokki og hækkai um 98 stig.
Fjöldi
Lenka Ptácníková tefldi bæði í Georgíu og Tékklandi og náði 20 skákum og Gauti Páll tefldi bæði á Hollandi og á Íslandi og náði 16 skákum.
Nýir á lista
Þrír koma nýir inn á lista. Stigahæstur þeirra er Páll Ísak Ægisson með 1622 stig.












