Íslandsmót barna- og unglingasveita 2026

    0
    335
    Hvenær:
    18. október, 2026 @ 13:00 – 16:00
    2026-10-18T13:00:00+00:00
    2026-10-18T16:00:00+00:00
    Hvar:
    Miðgarður
    Vetrarbraut 18
    210 Garðabær
    Ísland
    Gjald:
    12000
    Tengiliður:
    Taflfélag Garðabæjar
    Íslandsmót barna- og unglingasveita 2026 @ Miðgarður | Garðabær | Garðabær | Ísland

    Íslandsmót barna- og unglingasveita (taflfélaga) 2026 fer fram
    sunnudaginn 18. október í Miðgarði, fjölnotaíþróttahúsinu í Garðabæ.

    Taflmennskan hefst kl. 13. Liðstjórar staðfesta lið sín ekki seinna en kl. 12:45.

    Boðið verður upp á 3 aldursflokka:

    Opinn flokkur: Sigurvegari þessa flokks er Íslandsmeistari. 7 umferðir.
    B flokkur: 4.–7. bekkur – 5-7 umferðir.
    C flokkur: 1.–3. bekkur – allt að 5 umferðir.

    Heimilt er að keppa upp fyrir sig í flokki.

    Mótið er fyrir skákmenn fædda 2011 og síðar.

    Tímamörk verða 8 mínútur + 3 sek. á hvern leik.

    Þátttökugjöld eru 12000 kr. fyrir A-lið og 8.000 kr. fyrir hvert lið eftir það. Hámarksgjald fyrir félag er 30.000 krónur.

    Mótið verður reiknað til alþjóðlegra at-skákstiga. A- og B-lið hvers félags tefla saman í fyrstu umferð séu þau í sama flokki.

    Skráningarfrestur liða er föstudagurinn 15. Október kl. 15:00. Skráning verður á skak.is (Guli kassinn) eða á hlekknum Skráning

    Þegar skráð lið má finna með að smella hér

    Verðlaun og oddastig

    Veitt verða verðlaun fyrir þrjár efstu sveitirnar í opnum flokki, B-flokki og C-flokki.

    Oddastig séu sveitir jafnar að vinningum samkvæmt reglugerð um Íslandsmót barna- og unglingasveita.

    Mótið fer að öðru leyti fram samkvæmt Reglugerð um Íslandsmót barna- og unglingasveita.

    Vinsamlegast athugið að daginn áður, á laugardeginum, fer fram Íslandsmót ungmenna. Þetta eru tvö aðskilin mót. 

    - Auglýsing -