Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson gerði í dag jafntefli í þriðju umferð á opnu móti á Spáni: VII Open Internacional València Cuna del Ajedrez. Efstu borðin voru almennt friðsæl og þrátt fyrir jafnteflið er Hannes í skiptu efsta sæti ásamt fjölda sterkra meistara.
Hannes hafði svart gegn slóvenska alþjóðlega meistaranum Tim Janzelj (2394) í umferð dagsins. Slóveninn reyndi að koma Hannesi á óvart í byrjuninni en það heppnaðist ekki vel. Hannes jafnaði taflið auðveldlega og stóð mögulega aðeins betur en lítið af mönnum á borðinu og Hannes þáði jafnteflisboð.
Hannes hefur 2,5 vinning af þremur ásamt tíu öðrum skákmönnum. Hannes hefur hvítt gegn pólverjanum Lukasz Licznerski sem er stigahæstur keppenda í fjórðu umferðinni á morgun.
Alls taka 141 skákmaður þátt á mótinu og þar af fjöldi stórmeistara. Hannes er númer 13 í stigaröð keppenda. Tefld er ein umferð á daga, níu daga mót!

















