Eistneski heiðursstórmeistarinn Iivo Nei er látinn, 94 ára að aldri. Nei átti afar langan og merkilegan feril í skákinni, bæði sem keppnismaður, þjálfari og fræðimaður. Tengsl Nei við Ísland eru órjúfanleg en hann einn af aðstoðarmönnum Boris Spasskí í hinu sögufræga einvígi í Reykjavík árið 1972.

Nei fæddist í Tartu í Eistlandi 31. október 1931. Hann varð átta sinnum eistneskur meistari og hlaut alþjóðlegan meistaratitil árið 1964. Fyrir langan og öflugan feril sinn veitti FIDE honum heiðursstórmeistaratitil í febrúar 2024.

Hann skrifaði síðar, ásamt Robert Byrne, bókina Both Sides of the Chessboard, þar sem meðal annars er fjallað um einvígið í Reykjavík frá sjónarhorni þeirra sem voru inni í herbúðum Spasskís.

Nei var einnig virtur þjálfari og starfaði meðal annars með heimsmeisturum kvenna, Nona Gaprindashvili og Maia Chiburdanidze. Hann gegndi um árabil mikilvægu hlutverki í eistnesku skáklífi og þjálfaði margar kynslóðir sterkra skákmanna.

- Auglýsing -