Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson vann sterkan sigur í fimmtu umferð opna mótinu í Valencia á Spáni: VII Open Internacional València Cuna del Ajedrez. Mótherjinn var georgískur stórmeistari með yfir 2500 elóstig og Hannes lagði hann að velli í vel útfærðri skák. Hannes er jafn fimm öðrum skákmönnum í efsta sæti á mótinu.
Hannes hafði hvítt og Georgíumaðurinn tefldi ögrandi, 1…a6 gegn kóngspeðinu svipað og Miles gegn Karpov á árum áður. Hannes var ekkert að svitna of mikið og skipti taflinu yfir í franska vörn og fékk þægilegt miðtafl.
Hannes náði yfirhöndinni í miðtaflinu þegar andstæðingur hans missti líklegast af mótleik Hannesar.
17.Rxd7! og hér varð svartur að drepa með kóng 17…Kxd7. Mögulega hefur svartur haft í huga hér 17…Rxg3 en þá svarar hvítur 18.fxg3! og hrókurinn verður of sterkur á f-línunni.
Hannes náði svo yfirburða endatafli með 24.Bh5! hér sem er skemmtilegur leikur. Hér er 24…g6? auðvitað svarað með 25.Bxg6! Hannes vann svo endataflið nokkuð auðveldlega.
Hannes hefur 4 vinninga af 5 mögulegum og er í skiptu efsta sæti ásamt fimm öðrum skákmönnum.
Nú stendur yfir skák Hannesar og Egor Bodganov þar sem Hannes hefur svart. Bogdanov er stórmeistari frá Úkraínu.
Alls taka 141 skákmaður þátt á mótinu og þar af fjöldi stórmeistara. Hannes er númer 13 í stigaröð keppenda. Tefld er ein umferð á daga, níu daga mót!



















