Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson tapaði í sjöttu umferð áopna mótinu í Valencia á Spáni: VII Open Internacional València Cuna del Ajedrez. Mótherjinn var sterkur úkraínskur stórmeistari og tefldi hann góða skák og gaf Hannesi enga möguleika í dag.
Hannes hafði svart og upp kom skoski leikurinn. Hannes hefur líklegast tekið strategíska ranga ákvörðun snemma í miðtaflinu og virtist taflið mjög erfitt á hann og aðgerðir hvíts á kóngsvæng virtust tefla sig meira og minna sjálfar.
Tap niðurstaðan en Úkraínumaðurinn tefldi feykivel eftir að hann fékk betri stöðu.
Hannes hefur 4 vinninga af 6 mögulegum og er vinningi á eftir efstu mönnum.
Sjöunda umferð er á morgun en pörun liggur ekki fyrir.
Alls taka 141 skákmaður þátt á mótinu og þar af fjöldi stórmeistara. Hannes er númer 13 í stigaröð keppenda. Tefld er ein umferð á daga, níu daga mót!


















