Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson tapaði í lokaumferðinni á opna mótinu í Valencia á Spáni: VII Open Internacional València Cuna del Ajedrez. Hannes hafði hvítt og mætti alþjóðlegum meistara Fabio Fiorito frá Argentínu.

Sá argentíski virtist fílefldur eftir sigur samlanda hans gegn Sviss í fyrrinótt á HM í knattspyrnu. Hann lenti þó snemma „undir“ og Hannes fékk betri stöðu í miðtaflinu en mótspil svarts fór fljótt að bera árangur og Hannes tapaði manni undan sóknarþunga svörtu stöðunnar. Segja má að drottningarriddari svarts hafi verið Messi, hóf leik á b8 og var kominn alla leið á h2 í lokin að setja sigurmarkið!

Hannes endaði með 5 vinninga af 9 mögulegum og í 35. sæti en hann hóf leik númer 13 í rásröðinni. Hannes hagnast um 2 elóstig á mótinu en mest af stigagróðanum fór í vaskinn í lokaumferðinni. Egor Bogdanov varð efstur ásamt Nikoloz Petriashvili með 7 vinninga.

Alls tóku 141 skákmaður þátt á mótinu og þar af fjöldi stórmeistara. Hannes var númer 13 í stigaröð keppenda. Tefld var ein umferð á daga, níu daga mót!

- Auglýsing -