Gummi að stúdera í lok skákar. Mynd: David Llada.

Stórmeistarinn Guðmundur Kjartansson (2395) tapaði og vann í skákum gærdagsins. Í fyrri umferð dagsins steinlá hann fyrir úkraínska stórmeistaranum Eldar Gasanov (2443) en í þeirri síðari vann hann enska FIDE-meistarann Indy Southcott-Moyers (2208).

Gummi hefur 5½ vinning og er í 3.-5. sæti. Áðurefndur Gasanov er efstur 7 vinninga.

Lokaumferðin hófst núna kl. 9. Gummi teflir við tékkneska stórmeistarann Stephan Zilka (2526) sem er í öðru sæti með 6½ vinning.

Slóð á skák Gumma

Alls taka, 62 skákmenn og þar af fimm stórmeistarar, þátt í flokki Gumma sem er fimmti stigahæsti keppandinn. Meðal keppenda eru stórmeistarnir Simon Williams (2455) og Oleg Korneev (2433). Mótið fer fram 21.-26. júlí.

- Auglýsing -