Framboðsfrestur til forseta- og varaforsetaembættis FIDE rann út í gær. Samkvæmt frétt FIDE bárust aðeins þrír formlegir framboðslistar – ekki fjórir eins og margir áttu von á. Kosningarnar fara fram 26. september 2026 á þingi FIDE í Samarkand í Úsbekistan, samhliða Ólympíuskákmótinu. Hvert skáksamband hefur eitt atkvæði.

Framboðin þrjú

  • Timur Turlov (Kasakstan, 38 ára) – forseti
  • Viswanathan Anand (Indland, 56 ára) – varaforseti

Timur Turlov, milljarðamæringur og forseti Skáksambands Kasakstan, ætlaði upphaflega  að vera varaforsetaefni Arkady Dvorkovichs. Eftir að Dvorkovich afsalaði sér völdum vegna þvingunaraðgerða Evrópusambandsins steig Turlov fram sem forsetaefni. Fyrirtæki tengd honum (Freedom Holding) hafa fjárfest um 75 milljónir Bandaríkjadala í skák. Hann leggur áherslu á gervigreind í starfsemi FIDE, eflingu skólaskákar og aðstoð við landssambönd til að byggja upp sjálfbæra fjármögnun.

Vishy Anand, fimmfaldur heimsmeistari og starfandi forseti FIDE, hafði áður sagt að hann ætlaði ekki að bjóða sig fram aftur til að eyða meiri tíma með fjölskyldunni. Hann sneri aftur og samþykkti að vera varaforsetaefni Turlovs. Anand gegnir nú starfi forseta FIDE eftir að Dvorkovich afsalaði sér völdum.

  • Wadim Rosenstein (Þýskaland, 36 ára) – forseti
  • Gordon Tang (Kína/Singapore, um 58 ára) – varaforseti

Wadim Rosenstein, þýskur frumkvöðull og stofnandi WR Chess, er FIDE-fulltrúi þýska skáksambandsins. Hann leggur áherslu á sterkara stjórnskipulag, hraðari ákvarðanatöku og aukinn stuðning við skáksambönd. Tang er kínverskur viðskiptamaður með tengsl við eignarhaldsfélög í Singapore. Hann er sagður milljarðamæringur.

  • Jan Henric Buettner (Þýskaland, 61 árs) – forseti
  • Malcolm Pein (England, 65 ára) – varaforseti

Jan Henric Buettner, þýskur frumkvöðull sem byggði upp AOL Europe á 90. áratugnum og rekur lúxushótelið Weissenhaus, er þekktur fyrir Freestyle Chess-verkefnið ásamt Magnúsi Carlsen. Hann leggur áherslu á styrkingu skáksambanda, gagnsæi og samráð við aðildarlönd FIDE. Pein er alþjóðlegur meistari, afar þekktur skipuleggjandi skákmóta (m.a. London Chess Classic) og alþjóðafulltrúi enska skáksambandsins.

Hvað varð um Ilyumzhinov?

Kirsan Ilyumzhinov, forseti FIDE 1995–2018, tilkynnti framboð sitt 20. júlí. Rússneska skáksambandið skipti stuðningi yfir á hann eftir að Dvorkovich afsalaði sér völdum. Ilyumzhinov lofaði einu kjörtímabili, ætlaði sér að auka einingu innan skákheimsins, aukinni virðingu heimsmeistaratitilsins og að koma skák inn á Ólympíuleikana.

Hann skilaði hins vegar ekki inn formlegum framboðslista fyrir frestinn. Engin opinber skýring hefur komið fram á því hvers vegna. Samkvæmt reglum FIDE þarf hvert framboð stuðning a.m.k. fimm landssambanda (að minnsta kosti eitt frá hverri heimsálfu) og ekki ólíklegt að hann einfaldlega ekki náð að fá tilskyldar stuðningsyfirlýsingar.

Hvað varð um Dvorkovich?

Arkady Dvorkovich var settur á lista yfir þvingunaraðgerðir Evrópusambandsins 23. júlí vegna stuðnings við aðgerðir sem ógna fullveldi Úkraínu. Hann lýsti ákvörðuninni ólögmæta og ósanngjarna og hyggst skjóta henni til dómstóla, en afsalaði sér völdum strax til að tryggja áframhaldandi starfsemi FIDE. Dvorkovich er formlega enn forseti en hefur afsalað sér völdum á meðan þvingunaraðgerðirnar eru í gildi. Varaforsetinn Vishy Anand gegnir  nú skyldum forseta FIDE og gerir þangað til nýr forseti verður kosinn.

Skák.is verður sem fyrr með puttann á púlsinum.

Fyrri fréttir Skák.is um FIDE-kosningar 2026

- Auglýsing -