Úrslit LCWL

Lið Íslands hefur tryggt sér 3. sætið í deildinni í heimsmótinu í netskák. Afar góður árangur hjá liði sem var stofnað í haust og hafði afar takmarkaðan tíma til undirbúnings. Á keppnistímabilinu náðust nokkrir góðir sigrar, s.s. gegn Serbíu og Argentínu og munaði ekki miklu að enn stærri lið lægju í valnum. Liðið hefur smám saman verið að styrkjast í vetur og hafa ótrúlega margir af okkar bestu mönnum tekið þátt í viðureignum liðsins.
Nú liggur fyrir hvaða liðum við mætum í úrslitakeppni LCWL. Það ætti ekki að koma á óvart að við mætum liðum Rússa, Úkraínu og Serbíu.
Lið Íslands tekur með sér 5 stig úr deildinni og gildir sú regla í úrslitum að tvö stig fást fyrir sigur og eitt stig fyrir jafntefli. Það er því góður möguleiki að liðið geti unnið sig upp um sæti með góðri frammistöðu í úrslitakeppninni.
Skoða má stöðuna nánar hér
Dagskráin í úrslitakeppninni verður svona: (áætlun)
Rússland 30. des kl. 19:00
Úkraína 6. jan (óstaðfest)
Serbía 20. jan (óstaðfest).
Rússland sunnudaginn 30. desember kl. 19:00
Sunnudaginn 30. desember kl. 19:00 (Ath nýr tími!) mætum við ofursterku liði Rússa í úrslitum heimskeppninnar í netskák (LCWL).
Lið Rússa er gríðarlega öflugt og hafa þeir verið að mæta með gríðarlega fjölmenn lið til leiks í vetur. Það er því afar mikilvægt að sem flestir taki þátt á sunnudaginn svo lið Íslands eigi möguleika á að næla sér í stig.
Allir eru því hvattir til að mæta, og þeir sem enn hafa ekki tekið þátt í vetur, hvattir til að skrá sig í liðið og taka þátt í þessum skemmtilegu viðureignum.
HVENÆR?
RÚSSLAND – SUNNUDAGINN 30. DESEMBER KL. 19:00 (HRAÐSKÁK)
Keppnin verður með sama sniði og undanfarnar vikur, en aðeins er tefld hraðskák tefld hraðskák að þessu sinni og hefst sú viðureign kl. 19:00.
HVAÐ ÞARF AÐ GERA TIL AÐ TAKA ÞÁTT?
Keppendur þurfa að ganga í hópinn https://www.chess.com/club/team-iceland á Chess.com áður en keppnin hefst. Tengill á mótið verður birtur fyrir mót en hann má einnig finna í “Tournaments” flipanum á Chess.com áður en keppnin hefst.
Allir eru hvattir til að ganga í liðið, en ekki er gerð krafa um styrkleika. Því fleiri – því betra!
DAGSKRÁIN
- Sunnudagur 30. desember kl. 19:00 – Hraðskák 5/2 ( https://www.chess.com/live#tm=2167 )
TENGLAR
- Allar viðureignir Team Iceland til þessa: Hér
- Meðlimir Team Iceland: Hér
- Leifturskákin, staða og pörun: Hér
- Hraðskákin, staða og pörun: Hér
- Reglur LCWL: Hér









